Já, það var frekar blautt á Sandskeiði í morgun svo við ákváðum að kíkja í Kambana þar sem var aðeins léttara yfir. Rigningin elti okkur þó fljótlega á svæðið og svo komu skúrir með ca. 5 mínútna millibili svo við vorum ekkert að drífa okkur út í það. Böðvar var aðeins hungraðri enda nýbúinn að færa þyngdarpunktinn aftur á skaplegri slóðir svo honum var hent fram af og svo tók hann smá trimflug og listflugssýningu að trimmi loknu.
Við enduðum svo daginn á Litlu Kaffistofunni og gæddum okkur á veitingum í boði Böðvars, takk fyrir mig!
Kambar - 5.júní 2021
Kambar - 5.júní 2021
Icelandic Volcano Yeti