Síða 1 af 1

Re: 10.09.2008 - TF-SIF hefur sig til flugs á ný

Póstað: 10. Sep. 2008 13:27:05
eftir Sverrir
Já þetta eru gleðifréttir fyrir íslenska flugsögu en TF-SIF mun halda áfram að fljúga um loftin blá en ekki hér heima heldur í Tékklandi.

Flugsafn Íslands hefur þó ekki komist að samkomulagi um að selja vélina heldur er hér um að ræða flugmódel sem Ji?í nokkur Zikmund á heiðurinn af.

Hægt er að skoða fleiri myndir af TF-SIF í myndasafninu.

Re: 10.09.2008 - TF-SIF hefur sig til flugs á ný

Póstað: 10. Sep. 2008 14:11:14
eftir maggikri
Flott vél

Er Tóti flugmaður, Jón Erlends sigmaður og Gunni Binni, læknir nokkuð um borð í þessari.

kv
MK

Re: 10.09.2008 - TF-SIF hefur sig til flugs á ný

Póstað: 10. Sep. 2008 14:23:39
eftir Sverrir
Uppstillingin er nokkurn veginn svona... Kobbi, Tóti, Jón, Valdi og Gunni Binni ;)

Re: 10.09.2008 - TF-SIF hefur sig til flugs á ný

Póstað: 10. Sep. 2008 14:28:47
eftir Árni H
Gaman að sjá svona skalaþyrlu - vonandi flýgur hann henni sem slíkri :)

Re: 10.09.2008 - TF-SIF hefur sig til flugs á ný

Póstað: 10. Sep. 2008 15:07:51
eftir Gunni Binni
[quote=Sverrir]Já þetta eru gleðifréttir fyrir íslenska flugsögu en TF-SIF mun halda áfram að fljúga um loftin blá en ekki hér heima heldur í Tékklandi.

Flugsafn Íslands hefur þó ekki komist að samkomulagi um að selja vélina heldur er hér um að ræða flugmódel sem Ji?í nokkur Zikmund á heiðurinn af.

Hægt er að skoða fleiri myndir af TF-SIF í myndasafninu.[/quote]
Þetta eru flottar myndir, en hver er sagan á bak við að einhver Tékki er með þessa vél sem maður hefur hangið svo oft í?

Kveðja
Gunni Binni

Re: 10.09.2008 - TF-SIF hefur sig til flugs á ný

Póstað: 10. Sep. 2008 15:31:03
eftir Sverrir
Það er nú það, hann hefur væntanlega séð myndir af henni á netinu og sett sig í samband við einhverja hjá gæslunni hér heima.

Ég sendi kallinum póst um daginn, hann sagðist því miður ekki hafa enskukunnáttu til að svara mér og ætlaði að fá einhvern kunningja sinn í það, ég býð enn eftir því bréfi :)

Re: 10.09.2008 - TF-SIF hefur sig til flugs á ný

Póstað: 10. Sep. 2008 15:33:46
eftir Gunni Binni
[quote=Sverrir]Það er nú það, hann hefur væntanlega séð myndir af henni á netinu og sett sig í samband við einhverja hjá gæslunni hér heima.

Ég sendi kallinum póst um daginn, hann sagðist því miður ekki hafa enskukunnáttu til að svara mér og ætlaði að fá einhvern kunningja sinn í það, ég býð enn eftir því bréfi :)[/quote]
Það verður gaman að fylgjast með því, því þetta virðist ótrúlega vel gert.

kv.
GBG

Re: 10.09.2008 - TF-SIF hefur sig til flugs á ný

Póstað: 10. Sep. 2008 16:49:56
eftir Sverrir
Þegar ég segi um daginn þá á ég við 15.júlí ;)

Re: 10.09.2008 - TF-SIF hefur sig til flugs á ný

Póstað: 7. Maí. 2016 21:56:20
eftir Sverrir
Ekkert bólar á svari en hér er hún hjá nýjum eiganda og með nýjan mótor. ;)


Re: 10.09.2008 - TF-SIF hefur sig til flugs á ný

Póstað: 7. Maí. 2016 22:08:56
eftir maggikri
Svakalega er þetta flott. Flott flug. Ekki skemmir kvikmyndatakan fyrir!
kv
MK