Síða 1 af 2

Re: 12.08.2009 - Stórskalaflugkoma á laugardag

Póstað: 12. Ágú. 2009 12:20:02
eftir Sverrir
Laugardaginn 15.ágúst nk. kl.10 hefst stórskalaflugkoma Einars Páls að Tungubökkum í Mosfellsbæ. Þessi flugkoma hefur í gegnum tíðina verið ein af þeim skemmtilegri og allir sem vettlingi valda hafa mætt á svæðið.

Hægt er að skoða myndir frá eldri flugkomum í myndasafni Fréttavefsins.

Sunnudagurinn 16.ágúst er til vara ef veður skyldu verða válynd á laugardeginum.

Re: 12.08.2009 - Stórskalaflugkoma á laugardag

Póstað: 13. Ágú. 2009 17:01:52
eftir Sverrir
Lítur bara vel út með laugardaginn í augnablikinu!

Ætla menn ekki örugglega að fjölmenna?

Re: 12.08.2009 - Stórskalaflugkoma á laugardag

Póstað: 13. Ágú. 2009 19:50:49
eftir Haraldur
Ég ætla að einmenna.

Re: 12.08.2009 - Stórskalaflugkoma á laugardag

Póstað: 13. Ágú. 2009 20:18:25
eftir Páll Ágúst
Ég kem :)

Re: 12.08.2009 - Stórskalaflugkoma á laugardag

Póstað: 14. Ágú. 2009 18:32:44
eftir Gaui K
Þrímennum :)

Re: 12.08.2009 - Stórskalaflugkoma á laugardag

Póstað: 14. Ágú. 2009 18:51:56
eftir Guðjón
Hugsanlega mæta 4 :)

Re: 12.08.2009 - Stórskalaflugkoma á laugardag

Póstað: 14. Ágú. 2009 21:34:58
eftir Agust
Hvað er stórskalamót? >Kvartskali? >2ja metra vænghaf? Bara skalamódel? Hmmm?

Re: 12.08.2009 - Stórskalaflugkoma á laugardag

Póstað: 14. Ágú. 2009 23:09:42
eftir Páll Ágúst
Ég heyrði allt yfir tveimur metrum :/

Re: 12.08.2009 - Stórskalaflugkoma á laugardag

Póstað: 14. Ágú. 2009 23:24:47
eftir Flugvelapabbi
Sæll Agust, við notum viðmið IMAA einþekjur með minst 2ja metra vænghaf, tviþekjur með 1.6m þetta eru viðmið sem við höfum notað i tæp 30 ar. Reglurnar eru ekki minar serþarfir og vona eg að sem flestir sjai ser færi að mæta og njota samverunnar i goðum felagskap. Kaffi a könnuni og bakkelsi i boði motshaldara, verið velkomnir allir sem einn.
Kv.
Einar Pall

Re: 12.08.2009 - Stórskalaflugkoma á laugardag

Póstað: 15. Ágú. 2009 09:29:20
eftir Agust
Takk fyrir gott svar Einar Páll. Mig minnti þetta vera í þessum dúr.
Bestu kveðjur