Síða 1 af 1

Re: Breytingar á tollalögum

Póstað: 18. Jan. 2006 12:29:49
eftir Sverrir
Þær breytingar urðu á tollalögum um áramótin að verðmætamörk gjafa hækkuðu úr 7.000 í 10.000.
Gott að vita ef afmælið ykkar er á næstunni eða aðrar athafnir sem gefa tilefni til gjafa. ;)
Brúðkaupsgjafir geta þó verið verðmætari enda séu þar um að ræða „eðlilega og hæfilega gjöf að ræða“.

Athugið líka að ef gjöf er verðmætari þá ber einungis að greiða opinber gjöld af verðmæti hennar umfram 10.000.

Einnig er búið að rýmka heimildir er varða sendingu vara úr landi til viðgerða.

Sjá annars > http://www.althingi.is/lagas/131b/2005088.html

Re: Breytingar á tollalögum

Póstað: 18. Jan. 2006 16:43:01
eftir Þórir T
Flott að vita þetta, maður á nefnilega alveg ótrúlega oft afmæli, svo er maður alltaf að gifta sig!!!

mbk
Tóti

Re: Breytingar á tollalögum

Póstað: 18. Jan. 2006 18:00:53
eftir Björn G Leifsson
[quote=Sverrir]...Einnig er búið að rýmka heimildir er varða sendingu vara úr landi til viðgerða.

Sjá annars > http://www.althingi.is/lagas/131b/2005088.html[/quote]
það sem hefur breyst er möguleikinn að senda út hlut sem er í ábyrgð og fá honum skipt fyrir nýjan. Gömlu tollalögin gerðu ekki ráð fyrir að ábyrgðarmeðferð gæti falist í að skipta hlutnum út fyrir ónotaðan/nýjan.
Ég stóð í miklu stappi við tollayfirvöld út af svona máli fyrir nokkrum árum. Ég átti að borga full aðflutningsgjöld og söluskatt af tölvudiski sem var skipt út fyrri nýjan þar sem hann var í ábyrgð. Jafnvel þó ég gæti sannað að ég fengi hann mér að kostnaðarlausu og hefði sent ónýta hlutinn út. Ef ég hefði sent tölvuna alla og hlutnum skipt í henni þá hefði það ekki verið vandamál!!!!
Annað mál hafði komið upp áður þar sem maður fékk nýja veiðistöng í stað gömlu þar sem hún var í lífstíðarábyrgð. Hann stóð í heilmiklu stappi en varð að lúffa á endanum.
Málið endaði með því að ég kærði íslensku tollalögin til Eftirlitsstofnunar EES. Mun sú kæra hafa haft áhrif á að tollalögin voru endurskoðuð og það hvernig þessi grein (10. grein) varð á endanum.

Alltaf gaman að geta hrósað sjálfum sér... :D

Re: Breytingar á tollalögum

Póstað: 18. Jan. 2006 19:39:51
eftir Sverrir
Takk :)

Re: Breytingar á tollalögum

Póstað: 18. Jan. 2006 21:53:58
eftir Ingþór
hehe, það er naumast...
TAKK :)