Síða 1 af 2

Re: Er einhver hérna sem getur aðstoðað

Póstað: 24. Jan. 2006 01:51:35
eftir bmw3
Góðan daginn. Málið er það að ég var að kaupa mér hobbico vél sem hafði brotlent með brotið stél og væng sem þarfnast filmu og ég var að velta því fyrir mér hvort einhver hérna sem gæti aðstoðað mig við þetta eða leiðbeint mér þar sem ég er alveg nýfæddur í þessu?

Með kveðju Ásmundur 691-9151

Re: Er einhver hérna sem getur aðstoðað

Póstað: 24. Jan. 2006 19:44:57
eftir bmw3
þarf ég að skipta um alla hliðina á vélinni ef hliðinn er brotinn?

Re: Er einhver hérna sem getur aðstoðað

Póstað: 24. Jan. 2006 20:22:25
eftir Sverrir
Það fer eftir því hversu illa hún er brotin, þú gætir sloppið með það að styrkja svæðið en þú gætir líka þurft að skipta um hliðina.
Ef þú gætir sent inn mynd þá væri eflaust hægt að gefa þér einhver ráð með þetta :)

Re: Er einhver hérna sem getur aðstoðað

Póstað: 24. Jan. 2006 22:51:30
eftir Þórir T
ég myndi leggja til mynda innsetningu, eða að hreinlega að mæta á næsta fund hjá þínu módelfélagi með dótið og fá hreinlega ráðleggingar...
Sverrir, hvenær er næsti þytsfundur td? komið með stað og stund fyrir Ásmund

mbk
Tóti

Re: Er einhver hérna sem getur aðstoðað

Póstað: 24. Jan. 2006 23:01:15
eftir Sverrir

Re: Er einhver hérna sem getur aðstoðað

Póstað: 25. Jan. 2006 17:04:05
eftir bmw3
þarf ég að taka blöndunginn úrt til að liðka hann til því hann er alveg pikkfastur

Re: Er einhver hérna sem getur aðstoðað

Póstað: 25. Jan. 2006 17:47:46
eftir Ingþór
úff, ég lenti í þessu einusinni og tók hann úr og lagði hann í alkahól (ekki bjór) og náði þá að losa han, passa bara að pakkningar og gúmmihringir séu í lagi eftir svoleiðis dúttl

Re: Er einhver hérna sem getur aðstoðað

Póstað: 25. Jan. 2006 19:53:14
eftir bmw3
en hvernig set ég filmuna á vænginn hvað þarf ég að gera?

Re: Er einhver hérna sem getur aðstoðað

Póstað: 25. Jan. 2006 21:18:31
eftir Björn G Leifsson
[quote=Ingþór]úff, ég lenti í þessu einusinni og tók hann úr og lagði hann í alkahól (ekki bjór) og náði þá að losa han, passa bara að pakkningar og gúmmihringir séu í lagi eftir svoleiðis dúttl[/quote]
Fínt að nota "Rauðspritt" sem fæst í bensínstöðvum og málningarverslunum. Það er nauðsynlegur vökvi að hafa til að þrífa allt mögulegt þegar glóðareldsneyti er annars vegar.
Ég er alltaf með slatta af því í úðabrúasa (fæst td í Húsasmiðjunni) á verkstæðinu.

Það sem festir glóðarmótora er þornuð olía og spíri leysir það upp. Meginuppistaðan í glóðareldsneyti er tréspíri (baneitrað!) og rauðsprittið er náskylt því og virkar vel til að leysa upp og þrífa glóðareldsneytissull.
Það má ekki nota bensín (bílabensín) því það getur eyðilagt pakkningar. Ekki má heldur nota hvaða olíu sem er til að smyrja svona mótor, af sömu ástæðu. Best að nota "After run" olíu sem er sérvalin til þess.

Re: Er einhver hérna sem getur aðstoðað

Póstað: 25. Jan. 2006 21:59:55
eftir Björn G Leifsson
Varðandi klæðningu þá er það eitthvað sem ekki er erfitt að tileinka sér en þarf smá kunnáttu.
N ær undantekningalaust er notuð "hitafilma" sem er plastfilma með ábornu "hitalími". Notað er straujárn, gjarnan sérsmíðað en létt ferðastraujárn getur verið fínt. Filmurnar eru þannig gerðar að límið byrjar að verka við lágt hitastig og maður festir þannig filmuna niður. Síðan hækkar maður hitann og þá strekkir filman sig. Bestu filmurnar skilja vel á milli þessara eiginleika og er tiltölulega auðvelt að vinna með. Besta filman er þýsk og heitir ýmist Ultracote, Oracover eða Profilm (sama efnið) Ég held að Þröstur (modex) eigi fullt af henni í öllum litum.
Monokote er annað frægt merki en hún er ekki eins "vinaleg" og Profilm.

Trikkið er sem sagt að stilla járnið frekar lágt (fyrir Profilm einhvers staðar rúmlega "Wool" minnir mig) og festa niður filmuna og síðan hækka hitann (uþb "cotton" stillinguna) til að strekkja filmuna á.
Maður þarf að prófa sig svolítið áfram til að finna rétta stílinn.
Nánar hvernig maður fer að er víða lýst á netinu, td. á þessum síðum:

http://www.monokote.com/monoinst1.html

http://webpages.charter.net/rcfu/HelpsH ... lrCvr.html

Sjálfur keypti ég mér á sínum tíma ágætar bækur um efnið á Amazon.
Þessa og þessa