Síða 1 af 1

Re: Fyrsti innifundurinn hjá Þyt á vetri komanda

Póstað: 9. Sep. 2011 21:10:14
eftir lulli
Fyrsti félagsfundurinn hjá Fmf Þyt mun vera á fimmtudaginn, þann 15.sept nk.kl. 20:00 í Húsi félagsins á Hamranesi.
Rafmagn verður á húsinu og hitað verður með gasi þráðlaust-internet verður til staðar. svo aðstæður til fundarins verða hinar bestu.

Að þessum fundi loknum, má svo reikna með Þyts-fundum fyrsta fimmtudag hvers mánaðar. (að undanskildum desember)



Formaðurinn gerir klárt. Tvo væntanlega nýliða bar að garði en þeir voru nýkomnir úr Tómstundahúsinu með sitthvora vélina.
Mynd

Eins og sjá má, er lýsingin fín innan og utandyra.
Mynd


Kveðja Stjórnin.

Re: Fyrsti innifundurinn hjá Þyt á vetri komanda

Póstað: 9. Sep. 2011 23:06:26
eftir Agust
Muna ekki einhverjir eftir vetrarfundunum á Hamranesi á síðustu öld?

Þá voru haldnir fundir þar í hverjum mánuði meðan fært var vegna snjóa. Fundirnir voru mitt á milli hinna hefðbundnu fimmtudagsfunda sem eru í byrjun hvers mánaðar, þ.e. um miðjan mánuðinn Mjög ánægjulegt.

Re: Fyrsti innifundurinn hjá Þyt á vetri komanda

Póstað: 13. Sep. 2011 09:20:03
eftir lulli
[quote=Agust]Muna ekki einhverjir eftir vetrarfundunum á Hamranesi á síðustu öld?

Þá voru haldnir fundir þar í hverjum mánuði meðan fært var vegna snjóa. Fundirnir voru mitt á milli hinna hefðbundnu fimmtudagsfunda sem eru í byrjun hvers mánaðar, þ.e. um miðjan mánuðinn Mjög ánægjulegt.[/quote]
Ég verð reyndar að viðurkenna að ekki var ég í félaginu á þeim tíma.
En hitt er annað, að æskilegt væri að koma á meiri vetrarvirkni þá sérstaklega í
raun-flugi út á svæði.
Vefsendirinn væntanlegi mun að öllum líkindum færa þennann þátt mála á góða braut.
Og eins væri afar jákvætt ef póstað er ætlaðri mætingu á svæðin (fms- fmþ -fma- smst)
________________________________________________________________________________

EN ALLAVEGA MUNUM fimt.15/9. kl. 20´00 á Hamranesi.
________________________________________________________________________________

..Og auðvitað mæta fyrr ef menn eru í fluggír fyrir loftkúnstir og veður hagstæð.

Re: Fyrsti innifundurinn hjá Þyt á vetri komanda

Póstað: 14. Sep. 2011 22:00:19
eftir lulli
Orðsending til allra sem vettlingi og flugmódelum geta valdið
MUNUM fimtud.15.september kl. 20´00 á Hamranesi. -