Síða 1 af 1

Re: Festarfjall við Grindavík - 26.apríl 2013

Póstað: 27. Apr. 2013 10:21:37
eftir Sverrir
Þegar við Gunni keyrðum Suðurstrandarveginn heim í gær þá rak ég augun í nokkra staði sem gaman væri að skoða með hang í huga. Eftir að hafa nefnt þetta við Steina og Gústa út á Arnarvelli þá var ákveðið að halda í smá leiðangur og kanna málið.

Leið okkar lá rétt austur fyrir Grindavík að Festarfjalli og nærumhverfi, óhætt að segja að við urðum ekki fyrir vonbrigðum með það. Þar sem þetta var frekar óvæntur túr þá var ég því miður bara með símann með mér en án efa eigum við eftir að endurtaka leikinn fljótlega.

Festarfjall er örlítið hægra megin við A, punktarnir eru svo hvar við lögðum bílnum.
Mynd

Steini gerir vélina klára við fyrri staðinn(A), neðan við Skökugil.
Mynd Mynd Mynd Mynd

Kaffið kom í góðar þarfir til að koma smá yl í mannskapinn.
Mynd

Komnir á seinni staðinn(B), Skálasandsberg.
Mynd Mynd

Bullandi hang eins og sjá má á fuglunum.
Mynd Mynd

Smá vídeó af fjörinu, takið eftir að það er nánast logn á bjargbrúninni þar sem vindurinn fer yfir okkur og annað slagið kom hann í bakið á okkur.

Re: Festarfjall við Grindavík - 26.apríl 2013

Póstað: 27. Apr. 2013 10:40:03
eftir Gaui
Æðislegt !!!

:cool:

Re: Festarfjall við Grindavík - 26.apríl 2013

Póstað: 27. Apr. 2013 11:29:51
eftir maggikri
Snilld, þetta eru alvöruspaðar.

Kv
MK einn almesti platspaði seinni tíma.

Re: Festarfjall við Grindavík - 26.apríl 2013

Póstað: 27. Apr. 2013 14:08:07
eftir Spitfire
Skemmtilegt, er að komast á þá skoðun að svifflug er frábær skemmtun, vinn að því hörðum höndum að fá fleiri Patróna til að vera sammála :cool:

Re: Festarfjall við Grindavík - 26.apríl 2013

Póstað: 27. Apr. 2013 14:50:51
eftir arni
Það hefði verið gaman að vera með ykkur,en Gústi frændi er verðugur fulltrúi okkar Eyjamanna.Kveðja Árni.

Re: Festarfjall við Grindavík - 26.apríl 2013

Póstað: 27. Apr. 2013 19:47:43
eftir Flugvelapabbi
Strakar hann Jon a eina flotta hang svifflugu til sölu fyrir ahugasama
kv
Einar

Re: Festarfjall við Grindavík - 26.apríl 2013

Póstað: 28. Apr. 2013 19:50:33
eftir Árni H
Þetta er flott hjá ykkur!

Re: Festarfjall við Grindavík - 26.apríl 2013

Póstað: 28. Apr. 2013 20:12:24
eftir Gauinn
Er ekki Bixler nothæfur í svona skemmtilegheit?

Re: Festarfjall við Grindavík - 26.apríl 2013

Póstað: 28. Apr. 2013 20:22:44
eftir Agust
[quote=Gauinn]Er ekki Bixler nothæfur í svona skemmtilegheit?[/quote]


Bara Googla [ bixler slope soaring video ] ...

Ýmislegt kemur í ljós...

Re: Festarfjall við Grindavík - 26.apríl 2013

Póstað: 28. Apr. 2013 22:01:43
eftir Messarinn
Geggjað