Hvaða rella skyldi þetta vera?
Re: Hvaða rella skyldi þetta vera?
Úff - þetta er ekki fallegasta flugvél sem ég hef séð! Nú verð ég að leggja höfuðið í bleyti, þessa þekki ég ekki.
Re: Hvaða rella skyldi þetta vera?
Hérna er önnur mynd af þessari tegund ef það skyldi hjálpa.
Icelandic Volcano Yeti
- Björn G Leifsson
- Póstar: 2914
- Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45
Re: Hvaða rella skyldi þetta vera?
Minnir á Fairey Firefly??? samt margt sem er ólíkt. Firefly var til í margvíslegum útgáfum. Allavega ekki ólíklegt að sé frá Fairey svona ef marka má stílinn.
Er ég volgur??
Finn þetta ekki í biblíunum mínum. Á þó eftir að gá í eina bók sem pabbi á...
Er ég volgur??
Finn þetta ekki í biblíunum mínum. Á þó eftir að gá í eina bók sem pabbi á...
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
H.L. Mencken
Re: Hvaða rella skyldi þetta vera?
Tja... volgur og ekki volgur
Fyrir utan að vera lík Firefly þá gæti ég nefnt amk. tvær gerðir í viðbót sem hún er lík
En hún er ekki frá Fairey
Fyrir utan að vera lík Firefly þá gæti ég nefnt amk. tvær gerðir í viðbót sem hún er lík
En hún er ekki frá Fairey
Icelandic Volcano Yeti
Re: Hvaða rella skyldi þetta vera?
Mig grunar að þetta sé Westland! Ég á svo eftir að finna gerðina...
Re: Hvaða rella skyldi þetta vera?
Árni og Björn í harðri samkeppni... hvor hefur betur...
Icelandic Volcano Yeti
- Björn G Leifsson
- Póstar: 2914
- Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45
Re: Hvaða rella skyldi þetta vera?
Westland....? Neeehh. Þeir voru ekki með margar gerðir á þessu tímabili og fóru svo alfarið út í þyrlur upp úr 1950 ef mér skjátlast ekki.
Ekki nema þetta hafi verið eitthvað tilraunaverkefni? Þessir uppsveigðu vængendar eru sérstakir - "Winglets" eiga ekki að vera fundnir upp fyrr en löngu eftir stríð og fyrst notaðir af Burt Rutan 1974,,, eða hvað???
Nei,,, þessi er erfið. Fer að hallast að því að uppruninn sé kannski ekki sami og merkin gefa til kynna.
Ekki nema þetta hafi verið eitthvað tilraunaverkefni? Þessir uppsveigðu vængendar eru sérstakir - "Winglets" eiga ekki að vera fundnir upp fyrr en löngu eftir stríð og fyrst notaðir af Burt Rutan 1974,,, eða hvað???
Nei,,, þessi er erfið. Fer að hallast að því að uppruninn sé kannski ekki sami og merkin gefa til kynna.
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
H.L. Mencken
Re: Hvaða rella skyldi þetta vera?
Fyrst þú nefnir Burt þá má ég til með að sýna ykkur þessa mynd > http://frettavefur.net/Forum/viewtopic.php?pid=785#p785
Icelandic Volcano Yeti
Re: Hvaða rella skyldi þetta vera?
Hahahaha - frábær myndin af fljúgandi virkinu. Annars hefur líka hvarflað að mér að vélin dularfulla sé undir öðrum merkjum en upphaflega. Ég er búinn að þvælast í Westland vélunu en finn hana ekki. Ég er samt ekki búinn að gefast upp - vantar bara örlítið meiri tíma...