Stefánshöfði - 9.apríl 2019

Hér má ræða allt milli himins og jarðar
Svara
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11419
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Stefánshöfði - 9.apríl 2019

Póstur eftir Sverrir »

Ég og Guðjón skelltum okkur upp að Kleifarvatni um miðjan dag þar sem þokkalega blés að sunnan og nokkurn veginn á Stefánshöfða. Vindurinn var rysjóttur en þó bara alveg þokkalegur, hiti um 5°C og í kringum 5-6 m/s. Aðflugið var í leiðinlegri kantinum og fengum við smá rispur á vélarnar þegar þær hittu móður jörð aftur eftir stuttan aðskilnað.

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
gudjonh
Póstar: 847
Skráður: 27. Feb. 2008 09:07:06

Re: Stefánshöfði - 9.apríl 2019

Póstur eftir gudjonh »

Búinn að laga "rispuna" á Tragi.

Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd

Guðjón
Passamynd
Böðvar
Póstar: 475
Skráður: 17. Apr. 2004 09:20:53

Re: Stefánshöfði - 9.apríl 2019

Póstur eftir Böðvar »

Fékk póst frá meistara Sverri kl 15:20 um Hangflug við Kleifarvatn kl. 15.00. Var kominn kl. 16:05 enda ekki langt að fara frá Hafnarfirði, en þá voru allir farnir nema Fýlinn. Góður dagur að viðra dótið sitt aðeins í góðum ASA hangvindi. Takk samt fyrir póstinn. kv. Böðvar
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11419
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Stefánshöfði - 9.apríl 2019

Póstur eftir Sverrir »

Jæja, þeir skiluðu skeytinu þó til þín þó það væri næstum 2 klukkutímum eftir að ég sendi það, maður má kannski bara þakka fyrir að þeir rukkuðu þig ekki í leiðinni eins og Pósturinn er að stefna að!

Þú fékkst alla vega fína viðringu og hangflug út úr þessu... og einstaklega góðan félagsskap, kannski var þetta sá sami og flaug með Guðjóni og mér! :)
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Böðvar
Póstar: 475
Skráður: 17. Apr. 2004 09:20:53

Re: Stefánshöfði - 9.apríl 2019

Póstur eftir Böðvar »

Ég var einmitt núna tilbúinn með tvær Tragi svifflugur sem ég hef verið að vinna við og lagfæra í vetur, en þarf að æfa mig og fínstilla, takk fyrir góðan hug Sverrir. Þetta var frábær dagur á Stefánshöfða.
Mynd
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11419
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Stefánshöfði - 9.apríl 2019

Póstur eftir Sverrir »

Við náum þessu bara næst, sendi hugskeyti þá, það skilar sér örugglega betur! ;)

Mynd
Icelandic Volcano Yeti
Svara