Síða 1 af 1

Re: MXS Til-raunir

Póstað: 12. Maí. 2019 10:31:40
eftir stebbisam
Helgarveðrið notað til að gera tilraunir með MXS-r vélina og GoPro.

Fyrst flogið á Tungubökkum og svo á Hamranesi.
Jón V Pétursson gerði úttekt á flugeiginleikum og Skjöldur var í innra eftirliti

Mynd

Mynd

En sjón er sögu ríkari og hér er myndskeiðið:


Re: MXS Til-raunir

Póstað: 12. Maí. 2019 10:41:10
eftir maggikri
Allt annað að sjá GP vélina utan á vélinni. Mjög fínt.
kv
MK

Re: MXS Til-raunir

Póstað: 12. Maí. 2019 13:47:53
eftir Steinþór
JÁ mjög flott kv Steini litli málari

Re: MXS Til-raunir

Póstað: 12. Maí. 2019 14:16:05
eftir einarak
Virkilega gaman að þessu, Það væri flott að hafa G-force mæli líka til að sjá hvaða álag þessar spýtur þurfa að þola.

Re: MXS Til-raunir

Póstað: 13. Maí. 2019 08:42:48
eftir stebbisam
Takk fyrir góð ummæli, okkur fannst þessi tilraun mjög spennandi :)

Fróðlegt væri að geta fengið meiri upplýsingar inn á myndina svo sem G-álag, snúningshraða og hita á mótor ofl.
Þessar upplýsingar er hægt að fá gegnum Telemetry frá flugvélinni en ég finn ekki hvernig hægt væri að fella það inná myndskeiðið með því sem kemur frá GoPro vélinni sjálfri. RaceRender getur bara tekið upplýsingar frá einu tæki.
Þetta kemur kannski seinna, höfum augun opin .....

Re: MXS Til-raunir

Póstað: 13. Maí. 2019 09:53:38
eftir Björn G Leifsson
Meiri háttar :)

Re: MXS Til-raunir

Póstað: 13. Maí. 2019 10:22:15
eftir gunnarh
Mög flott að sjá þessar upplýsingar og snild að geta notað Gopro því þær eru alvöru.

Re: MXS Til-raunir

Póstað: 13. Maí. 2019 15:37:23
eftir Árni H
Flooooooott vél!

Re: MXS Til-raunir

Póstað: 13. Maí. 2019 23:53:40
eftir stebbisam
Fann loksins út hvernig hægt er að setja inn G-mæla. GPS data inniheldur þrívíddar-vektora sem hægt er að nota til að reikna út G-álagið.
Ég tók bút úr myndskeiðinu og setti þetta inná, sýnist að stundum fari yfir 3G í frekar átakalitlu flugi.
Fullskala MXS á að þola 10G og ætli módelið þoli það ekki líka.

Svona lítur þetta út


Re: MXS Til-raunir

Póstað: 14. Maí. 2019 11:06:19
eftir lulli
Það er frábært að fylgjast með þessu hjá þér Stebbi.
Gopro eru greinilega alltaf að útvinkla græjurnar.
Mér finnst þessi vél hrikalega töff og ekki skemmir það fyrir þýður gangurinn í mótornum.