Síða 1 af 3

Re: Kvöldstund í Hreiðrinu

Póstað: 27. Maí. 2019 14:01:57
eftir maggikri
Góðan dag

Bæjarstjórn RNB mun væntanlega skrifa undir samning við eigendur "Virkjunnar" í dag eða á morgun.

Ég er búinn að vera í samband við Hafþór Barða hjá RNB sem er með okkar mál á sinni könnu varðandi nýja staðinn. Flugmódelfélag Suðurnesja fær félagsaðstöðu í risi annars hússins í Virkjun (Sjá myndir).

Ég fæ vonandi lykil að henni á miðvikudag. Ég er núna að boða til fundar með hreiðursmönnum á fimmtudag kl. 19:00 (30.maí) þar sem við þurfum þá að flytja dótið okkar upp eftir og ganga frá húsinu að Vallarbraut 14. Það væri gott að sem flestir mæti þarna ( og hvað ef það er flugveður sem verður sennilega). Við verðum í risi á endanum með hringstiga.

Mynd Mynd Mynd Mynd

Re: Kvöldstund í Hreiðrinu

Póstað: 27. Maí. 2019 17:44:13
eftir RT
Til hamingju FMS félagar.
Rosalegur kraftur er í þessu félagi.
Nýbúnir að tapa gamla hreiðrinu og ekkert slegið af og búnir að koma upp nýrri Arnarhreiðri á nokkrum dögum!!!
Og svo Arnarvöllur, flugvöllurinn eins og nýsleginn túskildingur, glæsilegur.
Sjálfur smíða ég á fullu í kjallaranum heima í Reykjavík.

Megi ykkur farnast vel í nýju smíða og fundaraðstöðinni.
Til hamingju enn og aftur.
Kveðja
RT

Re: Kvöldstund í Hreiðrinu

Póstað: 27. Maí. 2019 18:50:35
eftir maggikri
Takk kærlega fyrir það Rafn og velkominn í nýja hreiðrið þegar það kemur í notkun.
kv
MK

Re: Kvöldstund í Hreiðrinu

Póstað: 27. Maí. 2019 20:07:44
eftir arni
Góður Maggi með stóru Emmi.Til hamingju með þetta.
Verður boðið upp á hringdans?
Kveðja. Árni F.

Re: Kvöldstund í Hreiðrinu

Póstað: 27. Maí. 2019 23:04:18
eftir maggikri
Takk fyrir það Árni minn. Hringdans var það heillin.
kv
MK

Re: Kvöldstund í Hreiðrinu

Póstað: 28. Maí. 2019 22:10:44
eftir Haraldur
Hvar er þetta nákvæmlega, (kort?) fyrir þá sem eru ekki staðkunnugir.

Re: Kvöldstund í Hreiðrinu

Póstað: 28. Maí. 2019 22:18:30
eftir maggikri
Sæll Halli.

https://ja.is/kort/?d=hashid%3A0En3V&x= ... 1&type=map
Bygging nr. 740. Ásbrú.

Við vorum með kynningu þarna árið 2010.
https://frettavefur.net/Forum/viewtopic.php?id=3788&p=1
kv
MK

Re: Kvöldstund í Hreiðrinu

Póstað: 1. Jún. 2019 22:10:36
eftir Árni H
Til hamingju með nýja hreiðrið - vel gert!

Re: Kvöldstund í Hreiðrinu

Póstað: 1. Jún. 2019 23:55:12
eftir lulli
Takk fyrir háklassa metnað Maggi. Klúbburinn farnast vel, en það gerir sig ekki sjálft (sorrý að ég komst ekki að hjálpa í dag) þessi klúbbur hefur gríðarsterka framherja í sinni herdeild ,enda líka vallar svæðið alltaf tip-top en í því sambandi er ómögulegt annað en að minnast á manninn með ljáinn ,sláttu höfðingjann sjálfan Gunna vélstjóra.
Þetta er flottur klúbbur með úrvals félögum
Til hamingju með nýju félagsaðstöðuna FMS!

Re: Kvöldstund í Hreiðrinu

Póstað: 3. Jún. 2019 00:15:01
eftir maggikri
Takk fyrir það drengir!
kv
MK


Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd