Lieserfalken - 7.júní , 8.júní & 9.júní 2019

Hér má ræða allt milli himins og jarðar
Svara
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11427
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Lieserfalken - 7.júní , 8.júní & 9.júní 2019

Póstur eftir Sverrir »

Við Steini lögðum land undir fót fyrr í mánuðinum og heimsóttum Þröst til Þýskalands. Að sjálfsögðu komu flugmódel við sögu í ferðinni og við skelltum okkur nokkrum sinnum út á völl í klúbbnum hans Þrastar að fljúga. Við náðum því miður ekki að hitta á öll stóru módelin sem eru í klúbbnum en hann Jóakim stórvinur okkar ræsti út son sinn með rúmlega 5 metra Swift og TRex 700 þyrlu til að halda smá flugsýningu fyrir okkur.

Óhætt er að segja að drengurinn kunni eitt og annað fyrir sér á pinnunum og fengum við flotta flugsýningu. Gaman líka að því að Jóakim, bróðir hans, synir þeirra og frændi þeirra eru allir mjög virkir í klúbbnum, sannkallað fjölskyldusport þar á ferð.

Stórskemmtilegur klúbbur með góðan móral og á Þröstur eflaust eftir að skemmta sér vel þarna á næstu misserum.

Að sjálfsögðu var ekki hægt að fara til Þrastar án þess að braska eitthvað og kom Steini heim með nýtt flugmódel... og sláttuvél! :D

Flott klúbbstæði.
Mynd

3.0 Audi A6 er ekki flottari en Forester, 3.0 Audi A6 er ekki... :rolleyes:
Mynd

Mynd

Mynd

Carden Extra-n er flott!
Mynd

Það var nóg að fljúga hjá strákunum.
Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Sólskýli, lúxusvandamál!
Mynd

Flugmódel af öllum stærðum og gerðum.
Mynd

Mynd

Steina leiddist ekkert svakalega að fljúga í blíðunni.
Mynd

Jóakim stórvinur okkar.
Mynd

Mynd

Steini að spauglera.
Mynd

Mynd

Swift-in mættur á svæðið.
Mynd

Jóakimssonur á leið í loftið.
Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Svo þurfti að smíða kassa utan um flugmódelið.
Mynd

Nokkru síðar.
Mynd

Allt orðið klárt fyrir heimför.
Mynd



Icelandic Volcano Yeti
Svara