Síða 1 af 1

Re: Sandskeið - 6.júlí 2019 - Hástartmót

Póstað: 6. Júl. 2019 19:53:51
eftir Sverrir
Það er óhætt að segja að veðurspáin hafið staðið fyrir sínu og þegar við mættum út á Sandskeið í morgun var hitinn þá þegar kominn upp í 16°C og átti hann bara eftir að hækka þegar leið á daginn. Átta keppendur mættu til leiks og tveir aðstoðarmenn ásamt mótsstjóra sáu um að þetta gengi allt vel fyrir sig.

Það var svona upp og ofan hvernig gekk í tímafluginu og marklendingunni, lægstu tímar voru undir mínútu og einhverjir náðu sex mínútum á lofti. í hraðafluginu var eitthvað svipað í gangi, hröðustu tímar nálægt 20 sekúndum og þeir hægustu í rúmum 40 sekúndum.

Vindurinn byrjaði í NA og hélst þannig fram yfir hádegið þegar hann snéri sér í sterka V átt svo færa þurfti spilið í þriðju umferð tímaflugsins. Flest flugin gengu áfallalaust fyrir sig en brotin lóðning í einni vél í byrjun dags var leyst með samvinnu viðstaddra og gat viðkomandi klárað að keppa þökk sé góðum félögum. En nokkur stórkostleg tilþrif sáust í spiltoginu og í loftinu hjá flugmönnum og tók Steini það svakalegan Blender að Örn hefði roðnað hefði hann séð hann! ;)

Óskum Sverri, Böðvari og Rafni til hamingju með efstu sætin.

Einar Páll fær þakkir fyrir röska mótsstjórn og sérlegu aðstoðarmennirnir Árni og Mundi líka en þeir stóðu sig allir þrír einstaklega vel í góða veðri dagsins. Svifflugfélagið fær líka kærar þakkir fyrir lánið á aðstöðunni, það er ómetanlegt að eiga þá að í þessum mótum.

Úrslit urðu sem hér segir:
Mynd
Áhugasamir geta séð hrágögnin neðst í póstinum.

Erlingur í góðum gír.
Mynd

Mundi og Einar Páll.
Mynd

Árni, Steini og Erlingur leysa lífsgátuna.
Mynd

Frekar rólegt fyrri hluta dags.
Mynd

Böðvar á uppleið.
Mynd

Glæsilegar vélar hjá Rafni, Tragi og Freestyler.
Mynd

Böðvar við vinnuborðið fína.
Mynd

Glóðardótið kemur enn að góðum notum.
Mynd

Pike Precision kom einstaklega skemmtilega á óvart.
Mynd

Steini og Strega á leið í loftið.
Mynd

Horft yfir pittinn.
Mynd

Guðjón og Tragi hafa flogið þetta þó nokkrum sinnum.
Mynd

Nýjasti meðlimur Dr. Spock?
Mynd

Árni, Rafn, Böðvar og Mundi fara yfir málin.
Mynd

Bíltog
Mynd

Minnisblað mótstjóra.
Mynd

Re: Sandskeið - 6.júlí 2019 - Hástartmót

Póstað: 6. Júl. 2019 20:02:31
eftir stebbisam
Aldeilis frábær dagur og spennandi mót, bestu þakkir !

Mynd
Yngri kynslóðin fylgist með
Mynd
Fríður hópur - Árni tók myndina
Mynd

Re: Sandskeið - 6.júlí 2019 - Hástartmót

Póstað: 6. Júl. 2019 20:43:30
eftir Sverrir
Nokkrar myndir úr myndavélinni hans Jóns. :)

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Re: Sandskeið - 6.júlí 2019 - Hástartmót

Póstað: 7. Júl. 2019 06:02:27
eftir Böðvar
Smá sýnishorn frá hástart mótinu
Mynd


Takk fyrir frábæran dag með frábærum félögum
kv. Böðvar

Re: Sandskeið - 6.júlí 2019 - Hástartmót

Póstað: 7. Júl. 2019 16:27:30
eftir Sverrir
Glæsilegt! :cool:

Re: Sandskeið - 6.júlí 2019 - Hástartmót

Póstað: 10. Júl. 2019 14:30:57
eftir RT
Kæru lesendur.

Tafla fylgir um úrslit hástartsmótsins F3B á Sandskeiði 6. júlí 2019.

Ég sló inn í fljótheitum úrslit af frumriti sem birtist á fréttavefnum en frétti að eftirspurn væri eftir töflu minni.

Þetta uppkast af niðurstöðu mótsins er gert í þeim tilgangi að keppendur geti farið yfir og skoðað nákvæmlega sinn árangur eftir mótið í rólegheitum.
Kannski eitthvað lært af því hvað þeir geti ef til vill gert betur næst.

Þessi tafla er eins og önnur mannana verk ekki óbrigðul. Ábendingar um villur eru afar vel þegnar.

Rafn Thorarensen.



Mynd

Re: Sandskeið - 6.júlí 2019 - Hástartmót

Póstað: 10. Júl. 2019 18:15:39
eftir Sverrir
[quote=RT]Þessi tafla er eins og önnur mannana verk ekki óbrigðul. Ábendingar um villur eru afar vel þegnar.

Rafn Thorarensen.
https://frettavefur.net/Forum/uploadpic ... 8910_0.jpg[/quote]

Sæll Rafn

Eins og þú segir þá erum við mannlegir og um að gera að bera saman bækur sínar.

Mig langar að benda á tvennt sem ég sé og stangast á við mína útreikninga:
  • Lendingarstiginn hans Stefán í 2. umferð, hann á að fá 85 stig
    (til að fá 95 stig þarf hann að vera innan við 2 metra frá punktinum)
  • Tímaútreikningnum á mér í 3. umferð, ég á að fá 256 stig en ekki 224 stig.
Svo eru samlagningarvillur* á þremur stöðum hjá þér:
  • Alls stig hjá Böðvari í 1. umferð þá vantar 1 stig hjá honum, 288+669=957
  • Alls stig hjá Guðjóni í 1. umferð en þá er 1 stigi ofaukið hjá honum, 671+821=1492
  • Alls stig hjá Stefáni í 1. umferð en þá er 1 stigi ofaukið hjá honum, 338+653=991
*Væntanlega námundum

Ég keyrði út útreikningana mína og þeir eru svona til samanburðar.

Mynd

Re: Sandskeið - 6.júlí 2019 - Hástartmót

Póstað: 12. Júl. 2019 12:39:31
eftir Sverrir
Nokkrar myndir frá Erlingi.

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Re: Sandskeið - 6.júlí 2019 - Hástartmót

Póstað: 12. Júl. 2019 14:45:59
eftir Árni H
Vel gert! Ég neita því ekki að maður fær svolítinn keppnisfiðring í puttana við að skoða þetta... :)