Það er óhætt að segja að veðurspáin hafið staðið fyrir sínu og þegar við mættum út á Sandskeið í morgun var hitinn þá þegar kominn upp í 16°C og átti hann bara eftir að hækka þegar leið á daginn. Átta keppendur mættu til leiks og tveir aðstoðarmenn ásamt mótsstjóra sáu um að þetta gengi allt vel fyrir sig.
Það var svona upp og ofan hvernig gekk í tímafluginu og marklendingunni, lægstu tímar voru undir mínútu og einhverjir náðu sex mínútum á lofti. í hraðafluginu var eitthvað svipað í gangi, hröðustu tímar nálægt 20 sekúndum og þeir hægustu í rúmum 40 sekúndum.
Vindurinn byrjaði í NA og hélst þannig fram yfir hádegið þegar hann snéri sér í sterka V átt svo færa þurfti spilið í þriðju umferð tímaflugsins. Flest flugin gengu áfallalaust fyrir sig en brotin lóðning í einni vél í byrjun dags var leyst með samvinnu viðstaddra og gat viðkomandi klárað að keppa þökk sé góðum félögum. En nokkur stórkostleg tilþrif sáust í spiltoginu og í loftinu hjá flugmönnum og tók Steini það svakalegan Blender að Örn hefði roðnað hefði hann séð hann!
Óskum Sverri, Böðvari og Rafni til hamingju með efstu sætin.
Einar Páll fær þakkir fyrir röska mótsstjórn og sérlegu aðstoðarmennirnir Árni og Mundi líka en þeir stóðu sig allir þrír einstaklega vel í góða veðri dagsins. Svifflugfélagið fær líka kærar þakkir fyrir lánið á aðstöðunni, það er ómetanlegt að eiga þá að í þessum mótum.
Úrslit urðu sem hér segir:
Áhugasamir geta séð hrágögnin neðst í póstinum.
Erlingur í góðum gír.
Mundi og Einar Páll.
Árni, Steini og Erlingur leysa lífsgátuna.
Frekar rólegt fyrri hluta dags.
Böðvar á uppleið.
Glæsilegar vélar hjá Rafni, Tragi og Freestyler.
Böðvar við vinnuborðið fína.
Glóðardótið kemur enn að góðum notum.
Pike Precision kom einstaklega skemmtilega á óvart.
Steini og Strega á leið í loftið.
Horft yfir pittinn.
Guðjón og Tragi hafa flogið þetta þó nokkrum sinnum.
Nýjasti meðlimur Dr. Spock?
Árni, Rafn, Böðvar og Mundi fara yfir málin.
Bíltog
Minnisblað mótstjóra.
Sandskeið - 6.júlí 2019 - Hástartmót
Re: Sandskeið - 6.júlí 2019 - Hástartmót
Icelandic Volcano Yeti
Re: Sandskeið - 6.júlí 2019 - Hástartmót
Aldeilis frábær dagur og spennandi mót, bestu þakkir !
Yngri kynslóðin fylgist með
Fríður hópur - Árni tók myndina
Yngri kynslóðin fylgist með
Fríður hópur - Árni tók myndina
Barasta
Re: Sandskeið - 6.júlí 2019 - Hástartmót
Nokkrar myndir úr myndavélinni hans Jóns.
Icelandic Volcano Yeti
Re: Sandskeið - 6.júlí 2019 - Hástartmót
Smá sýnishorn frá hástart mótinu
Takk fyrir frábæran dag með frábærum félögum
kv. Böðvar
Takk fyrir frábæran dag með frábærum félögum
kv. Böðvar
Re: Sandskeið - 6.júlí 2019 - Hástartmót
Kæru lesendur.
Tafla fylgir um úrslit hástartsmótsins F3B á Sandskeiði 6. júlí 2019.
Ég sló inn í fljótheitum úrslit af frumriti sem birtist á fréttavefnum en frétti að eftirspurn væri eftir töflu minni.
Þetta uppkast af niðurstöðu mótsins er gert í þeim tilgangi að keppendur geti farið yfir og skoðað nákvæmlega sinn árangur eftir mótið í rólegheitum.
Kannski eitthvað lært af því hvað þeir geti ef til vill gert betur næst.
Þessi tafla er eins og önnur mannana verk ekki óbrigðul. Ábendingar um villur eru afar vel þegnar.
Rafn Thorarensen.

[quote=RT]Þessi tafla er eins og önnur mannana verk ekki óbrigðul. Ábendingar um villur eru afar vel þegnar.
Rafn Thorarensen.
https://frettavefur.net/Forum/uploadpic ... 8910_0.jpg[/quote]
Sæll Rafn
Eins og þú segir þá erum við mannlegir og um að gera að bera saman bækur sínar.
Mig langar að benda á tvennt sem ég sé og stangast á við mína útreikninga:
Ég keyrði út útreikningana mína og þeir eru svona til samanburðar.

- Lendingarstiginn hans Stefán í 2. umferð, hann á að fá 85 stig
(til að fá 95 stig þarf hann að vera innan við 2 metra frá punktinum) - Tímaútreikningnum á mér í 3. umferð, ég á að fá 256 stig en ekki 224 stig.
- Alls stig hjá Böðvari í 1. umferð þá vantar 1 stig hjá honum, 288+669=957
- Alls stig hjá Guðjóni í 1. umferð en þá er 1 stigi ofaukið hjá honum, 671+821=1492
- Alls stig hjá Stefáni í 1. umferð en þá er 1 stigi ofaukið hjá honum, 338+653=991
Ég keyrði út útreikningana mína og þeir eru svona til samanburðar.
Icelandic Volcano Yeti
Re: Sandskeið - 6.júlí 2019 - Hástartmót
Vel gert! Ég neita því ekki að maður fær svolítinn keppnisfiðring í puttana við að skoða þetta...