Í tilefni af Ljósanótt verður haldin flugkoma á Arnarvelli laugardaginn 7. september frá kl. 11 til 16, ef veður leyfir. Síðust 5 árin hefur verið haldin „static“ sýning í Reykjaneshöllinni en í tilefni af 20 ára afmæli Ljósanætur ætlum við að rifja upp gamla tíma og halda sýninguna á Arnarvelli.
Bjóðum alla flugmódelmenn, og flugmódel þeirra, ásamt öðrum áhugasömum velkomna á svæðið og vonandi verða veðurguðirnir með okkur í liði.
Nokkrar myndir frá fyrri Ljósanæturflugkomum á Arnarvelli.
Flugkoma á Ljósanótt þann 7. september nk.
Re: Flugkoma á Ljósanótt þann 7. september nk.
Icelandic Volcano Yeti