Síða 1 af 3

Re: Tímaritið Flugmódelárið 2019

Póstað: 19. Nóv. 2019 16:41:32
eftir Sverrir
Jæja árið er farið að styttast verulega í annan endann og þið vitið hvað það þýðir! Samantekt á því helsta sem var að gerast á árinu á innbundnu formi í máli og myndum. Þetta verður fimmta árið sem tímaritið kemur út og stefnt er að því að hafa stærðina svipaða og áður.

Verðið stefnir í 2.500 kr að þessu sinni.

Mynd

Þeir sem áhuga hafa á að næla sér í eintak eru vinsamlegast beðnir um að senda mér línu, sverrirg hjá gmail.com, nú eða staðfesta það hér að neðan.

Vinsamlegast gangið frá pöntun sem allra fyrst eða í síðasta lagi fyrir miðnætti þann 26. nóvember nk. og vinsamlegast látið félaga og vini vita sem þið haldið að hafi áhuga á að fá glóðvolgt eintak í hendurnar á aðventunni.

Áhugasamir geta stytt sér stundir við lestur eldri eintaka hér á vefnum.

Mynd Mynd Mynd Mynd

PS
Sérstakt vildarkjaratilboð eða tvö eintök fyrir aðeins 5.000 kr! ;)

Re: Tímaritið Flugmódelárið 2019

Póstað: 20. Nóv. 2019 10:17:29
eftir gudjonh
Tek eitt! Finst vildarkjara tilboðið soldið "kleint".

Guðjón

Re: Tímaritið Flugmódelárið 2019

Póstað: 20. Nóv. 2019 12:35:07
eftir Sverrir
Staðfest!

Enda „tilboðið“ meira sett fram til gamans. :)

Re: Tímaritið Flugmódelárið 2019

Póstað: 20. Nóv. 2019 15:12:24
eftir birgirsig
Eitt eintak takk.

Re: Tímaritið Flugmódelárið 2019

Póstað: 20. Nóv. 2019 16:41:02
eftir Sverrir
Staðfest!

Re: Tímaritið Flugmódelárið 2019

Póstað: 20. Nóv. 2019 18:15:06
eftir maggikri
Ég er áskrifandi!
kv
MK

Re: Tímaritið Flugmódelárið 2019

Póstað: 20. Nóv. 2019 19:20:45
eftir Sverrir
Númer eitt! :)

Re: Tímaritið Flugmódelárið 2019

Póstað: 20. Nóv. 2019 19:26:30
eftir gunnarh
Tek eitt eintak.

Re: Tímaritið Flugmódelárið 2019

Póstað: 20. Nóv. 2019 20:04:26
eftir Sverrir
Staðfest!

Re: Tímaritið Flugmódelárið 2019

Póstað: 20. Nóv. 2019 23:26:45
eftir arni
Ég tek eitt eintak.