Skráning, próf og leyfi

Hér má ræða allt milli himins og jarðar
Svara
Passamynd
Björn G Leifsson
Póstar: 2914
Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45

Re: Skráning, próf og leyfi

Póstur eftir Björn G Leifsson »

Þið kannski voruð búnir að ræða þetta? En hér er um nýju reglurnar fyrir allt ómannað flug milli 250g og 20 kg í Bretlandi.

https://bit.ly/2O7n0gQ

Vinur minn þar í sveit er nýbúinn að taka prófið svo hann verði löglegur þegar reglurnar taka gildi. Hann segir prófið vera létt.
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
Passamynd
Gaui
Póstar: 3639
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Skráning, próf og leyfi

Póstur eftir Gaui »

Við þurfum ekkert svoleiðis hér. Reglurnar sem gilda á Íslandi eru mjög góðar fyrir okkur. Hér er reglugerðin: https://www.stjornartidindi.is/Advert.a ... c60e1a0342

:cool:
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11427
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Skráning, próf og leyfi

Póstur eftir Sverrir »

Ekki enn Guðjón en... :/

Þarft líka próf ef þú vilt fljúga í Danmörku, það er heldur ekki mikið mál þar sem prófin eru bara að kanna hvort þú kunnir helstu reglurnar, sem flestir gera vonandi. Í Danmörku þarftu svo að sækja um númer til að sýna á öllum þínum flugmódelum, í Bretlandi þarftu að borga £9 árlega ef þú rekur(e.operator) flugmódel, eins og nánast allir gera sem eru í sportinu.

Athugið samt að þeir sem eru með eitthvað af hæfnisprófum BMFA, eru undanþegnir því að þurfa að taka þetta próf í Bretlandi þar sem hæfnisprófin eru talin nægjanleg staðfesting á þekkingu þeirra. Og heimild er fyrir því að landssamtök, eins og BMFA, geti séð um skráningar fyrir sína félagsmenn þannig að fyrir þá flugmódelmenn sem eru félagar í BMFA, og með hæfnispróf, þá breytist ekkert við þessa lagasetningu.

- Danska hæfnisprófið
- Danska eigendaskráningin

Það er verið að vinna eftir sömu takmörkunum í þessum löndum og hér heima svo ég hvet menn til að spreyta sig á báðum prófunum þó ekki sé nema til að bæta skilningin á því umhverfi sem fljúgum sjálfir í. Ég er sjálfur með bæði prófin þar sem ég hef verið fljúga nokkuð reglulega í þessum löndum. Edit: Franska prófið líka komið í safnið, flýg þar á næsta ári.

Svo byrjar fjörið í lok júní 2020 þegar búist er við nýju Evrópureglunum. :D
Icelandic Volcano Yeti
Svara