Síða 1 af 1

Re: Desemberfundur Þyts 2019 - matarfundur

Póstað: 28. Nóv. 2019 14:33:37
eftir Elson
Kæri félagi

Desemberfundur Þyts verður haldinn miðvikudagskvöldið 4. desember í aðstöðu Flugklúbbs Mosfellsbæjar á Tungubakkaflugvelli klukkan 19:00.

Fundurinn verður með með svipuðu sniði og undanfarin ár, ætlunin er að vera með matarfund þar sem boðið verður upp á eitthvað góðgæti sem hirðkokkur Þyts (Bjarni gjaldkeri) mun töfra fram.

Eins og áður sagði verður eldað ofaní okkur og er því ætlunin að byrja fundinn klukkutíma fyrr en venjulega, eða klukkan 19:00.

Til þess að hægt sé að framkvæma þetta vandræðalaust er nauðsynlegt að við fáum að vita hverjir ætla að mæta, verðinu fyrir máltíðina verður stillt í hóf eða aðeins 3500 krónur og eru drykkjarföng (malt og appelsín)ásamt kaffi eftir máltíðina með einhverju góðgæti innifalið í verðinu.

Ath !!! Þeir sem það kjósa geta keypt bjór á staðnum.

Þeir sem ætla að mæta þurfa að skrá sig, annaðhvort hérna fyrir neðan eða senda póst á gjaldkeri@thytur.is og þarf skráning að hafa farið fram eigi síðar en á hádegi mánudaginn 2. desember, einnig er hægt að láta Bjarna gjaldkera vita í síma: 8479891.

Ath! Ekki verður posi á staðnum þannig að menn verða koma með reiðufé, eða semja við gjaldkera um aðrar greiðsluaðferðir.

Það er von okkar í stjórninni að menn taki vel í þetta og fjölmenni þannig að úr verði ánægjuleg kvöldstund.

Kveðja stjórnin

Re: Desemberfundur Þyts 2019 - matarfundur

Póstað: 28. Nóv. 2019 18:22:20
eftir Sverrir
Ég kem!

Re: Desemberfundur Þyts 2019 - matarfundur

Póstað: 28. Nóv. 2019 21:40:56
eftir JVP
Þetta verður frábært að vanda, ég kem

Re: Desemberfundur Þyts 2019 - matarfundur

Póstað: 29. Nóv. 2019 10:44:05
eftir Steinþór
Ég kem kv Steini litli málari

Re: Desemberfundur Þyts 2019 - matarfundur

Póstað: 1. Des. 2019 10:35:01
eftir Elli Auto
Ég mæti.

Re: Desemberfundur Þyts 2019 - matarfundur

Póstað: 1. Des. 2019 15:11:26
eftir arni
Ég kem.

Re: Desemberfundur Þyts 2019 - matarfundur

Póstað: 1. Des. 2019 16:24:59
eftir Elson
Ég mæti

Re: Desemberfundur Þyts 2019 - matarfundur

Póstað: 1. Des. 2019 22:41:17
eftir Ágúst Borgþórsson
Gústi, Gunni MX og Berti mæta.

Re: Desemberfundur Þyts 2019 - matarfundur

Póstað: 2. Des. 2019 22:48:30
eftir Sverrir
Stefnir allt í að ég verði með tímaritið með mér glóðvolgt úr prentun!

Mynd