Aðalfundur Þyts 2020

Hér má ræða allt milli himins og jarðar
Svara
Passamynd
Elson
Póstar: 221
Skráður: 28. Feb. 2010 14:50:11

Aðalfundur Þyts 2020

Póstur eftir Elson »

AÐALFUNDARBOÐ 2020

Aðalfundur Flugmódelfélagsins Þyts verður haldinn miðvikudaginn 26. febrúar 2020 í félagsheimili flugklúbbs Mosfellsbæjar að Tungubökkum og hefst klukkan 19:30.
Aðalfundur Þyts hefur æðsta vald í málefnum félagsins og eru félagsmenn hvattir til að fjölmenna á fundinn og taka þannig virkan þátt í mótun félagsins.
Við viljum líka hvetja áhugasama um setu í stjórn eða nefndum að senda póst á stjorn@thytur.is og gefa kost á sér skv. 7., 8., 9., og 10. lið dagskrár aðalfundarins.

DAGSKRÁ AÐALFUNDAR
1. Formaður setur aðalfund Þyts.
2. Kosning fundarstjóra og ritara aðalfundarins.
3. Skýrsla formanns um störf félagsins á liðnu starfsári.
4. Reikningar lagðir fram til samþykktar.
5. Fjárhagsáætlun og ákvörðun félagsgjalda.
6. Skýrslur nefnda.
7. Kosning formanns skv. 8.gr.
8. Kosning ritara og tveggja meðstjórnenda skv. 8.gr.
9. Kosning endurskoðenda.
10. Kosning í nefndir.
11. Tillögur um lagabreytingar.
12. Önnur mál.

Kosningarétt og kjörgengi ásamt rétti til fundarsetu á aðalfundi hafa allir skuldlausir félagar. Atkvæði eru óframseljanleg.
Kosningar skulu vera skriflegar nema fundurinn samþykki annað.
Þeir sem öðlast vilja rétt til fundarsetu verða að hafa greitt félagsgjöld a.m.k. viku fyrir aðalfund.

Undir liðnum önnur mál er fyrirhugað að ræða hvernig haldið verður upp á 50 ára afmæli Þyts, en fyrirhugað er að gera eitthvað af því tilefni síðla sumars.

Kveðja stjórnin
Bjarni Valur
Svara