Loksins fannst hang og termik á Tene og upplagt að setja nokkur orð á nýja vefinn.
Uppi í fjöllum við lítinn bæ San Miguel fannst lítil auð plantekra sem hægt var að lenda á.
Með hjálp fugla fann ég góða termik og hefði getað svifið endalaust, en hitinn um hádegið fór vel yfir 30 og gott að kæla sig á milli.
Ranger fór létt með GoPro á nefinu og tók fín myndskeið sem ég klippi þegar heim kemur.
Sólarkveðjur til módelflugmanna.
Tenerife - 12.febrúar 2020
Tenerife - 12.febrúar 2020
Síðast breytt af Sverrir þann 12. Feb. 2020 20:42:50, breytt 1 sinni.
Ástæða: Myndir
Ástæða: Myndir
Barasta
Re: Tenerife - 12.febrúar 2020
Snilld Stebbi. Svilítill munur á veðurfari, 30 stiga hiti hjá þér og mínus 10-20 hjá okkur á klakanum. Verður gaman að sjá videoið út vélinni. Þú ert svo flottur á að vera að klippa videóin. Slóveníu bræðurnir kapteinn Blush og co eru ekkert að hafa fyrir því setja þetta vara eins og það kemur af skepnunni.
kveðja frá Klakanum.
kveðja frá Klakanum.
Re: Tenerife - 12.febrúar 2020
Sumir taka bara ekki nógu góð video til að setja beint "af skepnunni" - aðrir geta þetta og hrósa klaufunum í hæversku !
Barasta