Fagnaði Þytur 30 ára afmæli sínu, m.a. með útgáfu afmælistímarits, hátíðarkvöldverðs og flugsýningu, en talnaglöggir menn sjá auðvitað í hendi sér að í ár fagnar Þytur hálfrar aldar afmæli! Svona í tilefni af áfanganum þá er afmælisblaðið komið formlega á bókasafnið og svo vonandi í aðeins meiri gæðum þegar líður á árið.
En ég rakst á áhugaverðar blaðsíður aftast í afmælisritinu þar sem má finna nokkur unglömb með flugmódel sín en skv. lauslegri talningu eru sennilega um 27 af 41 flugmódel enn á meðal vor, sem verður bara að teljast prýðilegur árangur.
Svona til gamans þá var 35 ára afmælinu fagnað með hátíðarkvöldverði á Naustinu, ekki víst að allir séu tilbúnir að sjá þær myndir en ég læt eina flakka að lokum!
Fyrir um 20 árum síðan
Fyrir um 20 árum síðan
Icelandic Volcano Yeti