Lendingar með kráku / fiðrildi eða bara spoilerónum...

Hvort sem það er hástart eða hang, sjálfknúið eða vindknúið, þá er þetta ágætis staðsetning fyrir það.
Svara
Passamynd
Agust
Póstar: 2984
Skráður: 23. Apr. 2004 06:34:18

Re: Lendingar með kráku / fiðrildi eða bara spoilerónum...

Póstur eftir Agust »

Hér er fróðlegt myndband sem sýnir hve miklu auðveldara er að lenda ef maður getur notað flapsana ásamt báðum hallastýrum upp sem lofthemla (crow eða buttefly) miðað við að setja eingögu bæði hallastýrin upp (spoilerons).



Þegar maður notar kráku eða fiðrildi (crow eða butterfly) lofthemla, þá er maður í reynd kominn með ofur mikið washout eða vængvinding. Þannig er hægt að hægja mikið á ferðinni (toga í hæðarstýrið) án þess að eiga á hættu að vélin ofrísi hættulega. Einnig er oft hægt að steypa vélinni næstum lóðrétt niður án þess að hún auki hraðann verulega.
Bestu kveðjur
Ágúst H Bjarnason
Þytur
http://www.agust.net
Svara