Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP

Sýnið hvað þið eruð að smíða eða setja saman
Passamynd
Gaui
Póstar: 3763
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Taylorcraft Auster 5A, TF-LBP

Póstur eftir Gaui »

TF-LBP -- dagur 16

Dagurinn byrjaði á tiltekt á verkstæðinu: dót sem ég átti þarna niðurfrá og hafði lítið hlutverk þar, var tekið, sett í bílinn og flutt heim í kjallarann, þar sem því ferður komið fyrir eða fyrirkomið eftir atvikum.

Ég ákvað að reyna að byrja á vængjunum og til þess þurfti ég að búa til 11 framrif á hvorn væng, sem ekki fylgja með í kittinu og eru ekki sýnd á teikningunni. Það er ljóst af myndum og teikningum og slíku að það eru framrif á milli vængrifjanna á Taylorcraft Auster, svo ég verð að búa þau til og líma þau á sína staði.
20241226_105121.jpg
20241226_105121.jpg (135.53 KiB) Skoðað 28 sinnum
Næst þurfti ég að framlengja vængbitana. Þeir eru fjórir. Efnið sem ég fékk er 914mm eða þar um bil en þeir þurfa að vera rúmlega 1200mm.
20241226_110335.jpg
20241226_110335.jpg (138.08 KiB) Skoðað 28 sinnum
Ég skar efri afturbrún og flapsa úr 1,5mm krossviði. Ég hugsa að ég geri neðri afturbrúnina úr balsa, en ég á nægan krossvið sem ég get notað í hana. Neðri afturbrúnin verður ekki nema 10mm eða svo fyrst ég ætla að setja flapsa.
20241226_112802.jpg
20241226_112802.jpg (139.44 KiB) Skoðað 28 sinnum
Ég skar neðan úr fimm rifjum no. 2 fyrir flapsanum. Rifin eru gerð úr léttkrossviði og auðvelt að skera þau með beittum hníf.
20241226_115103.jpg
20241226_115103.jpg (143.81 KiB) Skoðað 28 sinnum
Nú get ég byrjað að máta rifin á rétta staði.
20241226_120542.jpg
20241226_120542.jpg (142.28 KiB) Skoðað 28 sinnum
8-)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Svara