Það bar við nokkru fyrir jól að boð bárust frá Slippnum að nú væri farið að hitna verulega undir FMFA í suðurkjallaranum, hvar félagið hefur nú verið í ein 12 - 14 ár og fyrsta janúar yrði félagið að vera búið að losa húsnæðið. Því var nú ekki verulega vel tekið og ekki laust við að sveðjur væru brýndar í bakherbergjum, gamlir rifflar teknir niður af veggjum og Mývetningurinn í hópnum hafði á orði að einhverstaðar væri hægt að komast í dýnamítafganga, enda ekkert vandamál svo stórt að ekki væri hægt að leysa það með svo sem ögn af fyrrgreindu sprengiefni. Sem betur fer róuðust félagar FMFA fljótlega enda flestir farnir að reskjast og mesti hamfaramóðurinn runninn af þeim.
Þá byrjaði leitin að hentugu húsnæði. Það verður að segjast að leitin að gistiherbergi í Betlehem fyrir rúmum 2000 árum hefur sennilega verið öllu auðveldari en leitin að hentugu húsnæði fyrir flugmódelfélagið. Þegar öll sund virtust lokuð og örvilnan skammt undan birtist Tomma frelsandi engill í líki Dunda, sem er verktaki hér í bæ. Hann var með laust iðnaðarbil og til að gera langa sögu stutta náðust samningar við hann um leigu.
Var þá hafist handa við flutninga. Eins og í öllum flutningum kom í ljós gríðarlegt magn af dóti sem auðvitað átti að vera löngu búið að fleygja á haugana þannig að nokkrir sendibílfarmar fóru beint í ruslið. Ef Tomma hefði ekki notið við á stórum sendibíl hefum við sennilega verið í mjööööög djúpum skít. Svo var hafist handa við að koma fyrir borðum, verkfærum, flugherminum, kaffiaðstöðunni og rafmagn lagt í borð og loft. Nú er loksins að komast mynd á sköpunarverkið og hægt að fara að huga að smíðum og viðhaldi og síðast en ekki síst - að drekka kaffi og segja sögur!
Meðfylgjandi myndir byrja í Slippnum og færast svo yfir í Goðanes, þ.e.a.s. ef þær hafa raðast rétt upp. Þær ná engan veginn að sýna umfang þess verkefnis að flytja heilt félag um set en hvað um það - nú er alltaf heitt á könnunni í Goðanesi!
Smíðað í Goðanesi
Smíðað í Goðanesi
- Viðhengi
-
- 20241212_204605.jpeg (405.14 KiB) Skoðað 6 sinnum
-
- 20241214_135643.jpeg (374.3 KiB) Skoðað 6 sinnum
-
- 20241214_144744.jpeg (268.43 KiB) Skoðað 6 sinnum
-
- 20241214_151801.jpeg (392.05 KiB) Skoðað 6 sinnum
-
- 20241217_143253.jpeg (324.46 KiB) Skoðað 6 sinnum
-
- 20241217_143711.jpeg (354.71 KiB) Skoðað 6 sinnum
-
- 20241217_144205.jpeg (291.14 KiB) Skoðað 6 sinnum
-
- 20241217_150159.jpeg (405.23 KiB) Skoðað 6 sinnum
-
- 20241221_142411.jpeg (239.97 KiB) Skoðað 6 sinnum
-
- 20241230_164548.jpeg (197.75 KiB) Skoðað 6 sinnum
-
- 20250109_200606.jpeg (326.17 KiB) Skoðað 6 sinnum
-
- 20250109_201154.jpeg (368.94 KiB) Skoðað 6 sinnum
-
- 20250109_203050.jpeg (319.32 KiB) Skoðað 6 sinnum
-
- 20250109_211025.jpeg (328.35 KiB) Skoðað 6 sinnum
-
- 20250129_140644.jpeg (323.93 KiB) Skoðað 6 sinnum
-
- 20250129_143126.jpeg (356.7 KiB) Skoðað 6 sinnum
-
- 20250130_200359.jpeg (356.61 KiB) Skoðað 6 sinnum
Re: Smíðað í Goðanesi
Til hamingju með nýju aðstöðuna, leit þarna við um daginn og get staðfest að þetta er allt saman mjög kósý hjá drengjunum!
Icelandic Volcano Yeti