Nokkur smáverk í Stampe, sem taka oft þó nokkuð langan tíma. Ég byrjaði á að setja teina í loftlúðurinn til að halda honum á skrokknum og límdi hann svo rækilega á rétta staðinn.
20250604_090950.jpg (134.51 KiB) Skoðað 50 sinnum
Svo lóðaði ég rör á festingar fyrir fyllingu og yfirfall í tankinn.
20250604_095823.jpg (140.14 KiB) Skoðað 50 sinnum
Ég festi dekkin á hjólastellið og að lokum penslaði ég parkettlakk á allan skrokkinn. Á morgun ætla ég að líma stýrifletina á. Þetta er verulega flott flugvél.
20250604_120456.jpg (138.19 KiB) Skoðað 50 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Ég límdi lamirnar í stélstýrin eins og ég lofaði og svo setti ég mótorinn á og tengdi allt sem þurfti að tengja: bensínslöngur, inngjöf, kveikju og svo framvegis. Aðgangur að innsoginu verður í gegnum opin framaná.
20250605_111333.jpg (135.4 KiB) Skoðað 29 sinnum
Svo tengdi ég servó við stélstýrin og prófaði virkni þeirra. Rafhlöðurnar koma þarna framan við servóin (ef jafnvægispunkturinn lendir á réttum stað).
20250605_120439.jpg (139.99 KiB) Skoðað 29 sinnum
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Stampurinn er að nálgast síðustu handtökin. Ég setti vængina á og dáðist að móelinu, sem er feikna fallegt, þó ég segi sjálfur frá.
20250606_142311.jpg (139.44 KiB) Skoðað 1 sinni
Þá gáði ég hvar vélin rambaði (betra orð en skrípið "ballanseraði"). Samkvæmt leiðbeiningum ætti hún að ramba á aftari vængboltum á efri væng, eða þar rétt fyrir framan -- ALLS EKKI AFTAR! Ég setti rafhlöður eins framarlega og mér var unnt og þá rambaði hún nokkurn vegin á réttum stað. Hér sést rafkerfið, frá vinstri: 6 V NiCad, straumbreytir, 1300mAh Lipo sem ég tengi við straumbreytinn. NiCad rafhlöðurnar eru fyrir kveikjuna og Lipo fyrir stýringuna. Ef ég set krossviðar þil fyrir aftan þetta, þá ætti þetta að sitja kyrrt á sínum stað.
20250606_144609.jpg (136.72 KiB) Skoðað 1 sinni
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.