Síða 2 af 3

Re: Scheibe SF-28 Tandem Falke

Póstað: 6. Nóv. 2020 17:24:46
eftir Ágúst Borgþórsson
Já, ég hef mjög gaman að því að fylgjast með ykkur þarna fyrir norðan. En Gaui, er þetta sem þú ert með í smíðum á Grísará ziroli Texan??

Re: Scheibe SF-28 Tandem Falke

Póstað: 7. Nóv. 2020 17:50:47
eftir Gaui
Já, Ziroli Texan. Er að verða búinn -- smáatriði eftir og svo mála.

8-)

Re: Scheibe SF-28 Tandem Falke

Póstað: 9. Nóv. 2020 19:14:39
eftir Gaui
Ég er enn að dúllast í stélinu, enda stekk ég í þetta tvisvar í viku, nokkra klukkutíma í senn.

Hér fer stýrisarmurinn inn á milli hæðarstýranna. Hann er beygður úr 3mm suðuvír og svo silfurkveikti ég kopar arm á. Límið sem ég nota hér er Loctite Hysol 9462, lím sem festir hvað sem er og hnýgur ekki þegar maður ber það á. Krossviðurinn sem sést fremst er síðan notaður til að klæða á rifin og miðjuna til að þetta sjáist ekki.
20201105_211406.jpg
20201105_211406.jpg (144.83 KiB) Skoðað 2857 sinnum
Það eru fjórar Robart Heavy Duty lamir á stýrunum. Þær eru grafnar dálítið vel inn í frambrúnina á stýrunum, svo það er eins gott að hafa balsakubb innan við, sem getur haldið lömunum á sínum stað.
20201107_125433.jpg
20201107_125433.jpg (90.47 KiB) Skoðað 2857 sinnum
Og hér er svo stélið allt, hæðarstýrin komin á og hægt að fara að klæða. Það eina sem ég er í vafa um núna er hvort trimm flipinn skuli vera fastur eða hreyfast með stýrinu. Ég þarf að ná mér í þríhliða teikningar af þessari flugvél til að skoða það -- það er ekki nefnt á teikningunum
20201107_131033.jpg
20201107_131033.jpg (145.03 KiB) Skoðað 2857 sinnum
Ég er byrjaður að raða skrokknum saman. Ég set miðjulínu á hvert rif og stilli því upp á strik sem ég set á smíðaborðið. Þegar öll rifin eru komin þarf ég að pússa skorur á þeim í rétta stærð til að taka við langböndunum og þá get ég sett fætur undir rifin og límt þau á smíðaborðið
20201107_150449.jpg
20201107_150449.jpg (143.19 KiB) Skoðað 2857 sinnum
8-)

Re: Scheibe SF-28 Tandem Falke

Póstað: 22. Nóv. 2020 20:03:08
eftir Gaui
8-) Það hefur tekið langan tíma að byrja að raða skrokknum saman, en nú er hann kominn vel á veg. Mesta vinnan er í því að pússa allar raufar í rétta stærð. Eitt rifið er líka með hjólaskál og það þarf að búa hana til:
20201112_203339.jpg
20201112_203339.jpg (124.87 KiB) Skoðað 2808 sinnum
Hér er hjólaskálin komin á sinn stað í rifinu.
20201119_195632.jpg
20201119_195632.jpg (110.1 KiB) Skoðað 2808 sinnum
Til að skrokkrifin séu í réttri hæð nota ég 6x6mm balsastangir sem ég lími við rifin og niður á borðið. Hér er fremsta rifið komið á sinn stað. Miðlínan á rifinu hjálpar til við að fá það á réttan stað og stöðu
20201121_142637.jpg
20201121_142637.jpg (130.47 KiB) Skoðað 2808 sinnum
Hér eru öll skrokkrif nema eitt komin í rétta hæð. Nú þarf ég að búa til sex langbönd, fjögur úr 6x6mm furu og tvö úr 5x5mm balsa. Þegar þau eru komin á verður skrokkurinn orðinn nokkuð stöðugur.
20201121_180146.jpg
20201121_180146.jpg (150.72 KiB) Skoðað 2808 sinnum
Hér er eina skrokkrifið sem var eftir. Ég þurfti að fara með það heim til að búa til hjólastell á það.
20201122_115647.jpg
20201122_115647.jpg (149.83 KiB) Skoðað 2808 sinnum
8-)

Re: Scheibe SF-28 Tandem Falke

Póstað: 5. Des. 2020 16:28:52
eftir Gaui
Slæm verður og vondar heilsur koma í veg fyrir miklar framkvæmdir, svo að Fálkinn hefur lítið farið fram undanfarið. Hér eru þó nokkrar myndir af framkvæmdum.

Stélhjólið er komið á skrokkrifið og tilbúið til notkunar.
20201125_193355.jpg
20201125_193355.jpg (137.89 KiB) Skoðað 2764 sinnum
Rifið er síðan fest á sinn stað í röðinni.
20201126_201903.jpg
20201126_201903.jpg (104.79 KiB) Skoðað 2764 sinnum
Það eru nokkur langböndin í þessu skrokk og hér eru þau efri komin á sína staði.
20201126_203422.jpg
20201126_203422.jpg (147.5 KiB) Skoðað 2764 sinnum
Nefið er frá gengið. Það er hálfrif hangandi í langböndum þar og svo þarf ég að fylla á milli bandanna og staðsetja tankinn, en það er seinni tíma vandamál.
20201126_212334.jpg
20201126_212334.jpg (136.39 KiB) Skoðað 2764 sinnum
Neðstu langböndin komin á skrokkinn. Þau eru úr furur og eru 6x6mm, svo það var ekki mögulegt að sveigja þau á milli rifjanna fremst. Hönnuðurinn mælir með því að maður hitar viðinn með gufu og beygjir hann í form á meðan hann er heitur, en ég er ekki með svoleiðis græjur, svo ég bara sagaði langböndin í ræmur þar sem þau þurftu að bogna. Það er létt verk að beygja 3mm þegar 6mm vilja ekki hreyfast.
20201205_131924(0).jpg
20201205_131924(0).jpg (148.55 KiB) Skoðað 2764 sinnum
Og svo eru skábönd sett á milli allra skrokkrifja, í báðum hliðum, efst og neðst. Það verður heilmikið verk að setja þau öll í, en þá ætti skrokkurinn að vera orðinn skemmtilega stífur og stirður og þver, eins og segir í laginu.
20201205_135658.jpg
20201205_135658.jpg (152.79 KiB) Skoðað 2764 sinnum
8-)

Re: Scheibe SF-28 Tandem Falke

Póstað: 10. Jan. 2021 20:04:00
eftir Gaui
Það er orðið dálítið síðan ég setti inn færslu um Fálkann, en það hefur ekkert sérlega mikið gerst þrátt fyrir það. Jólin eiga það til að vera frekar
fyrirferðamikil, líka hjá þeim sem eru ekkert að gera veður út af þeim. En, hér eru nokkrar myndir af því sem hefur þó áunnist:

Vængsætin á skrokknum voru sett upp á flipana á skrokkrifjunum, en ekki límd föst alveg strax. Ég á enn eftir að gera göt fyrir vængrörið og stýripinnana.
20201212_150639.jpg
20201212_150639.jpg (137.22 KiB) Skoðað 2600 sinnum
Það þurfti að setja áfyllur þar sem þverbönd og langbönd mætast og síðan fylla á milli banda fremst á skrokknum. Þetta er þó ekki búið því ég þarf að fylla meira eftir að ég losa skrokkinn af stultunum. Eins á eftir að koma gólf í flugklefann sem heldur við hjólið og gerir þann búnað sterkari.
20201219_133716.jpg
20201219_133716.jpg (137.54 KiB) Skoðað 2600 sinnum
Þetta er líka gert hinum megin.
20210102_150435.jpg
20210102_150435.jpg (149.41 KiB) Skoðað 2600 sinnum
Hér er gólf fyrir farangur fyrir aftan aftursætið.
20210107_202431.jpg
20210107_202431.jpg (116.1 KiB) Skoðað 2600 sinnum
Og hér er ég búinn að stilla í (en ekki líma) læsingu fyrir glerið yfir flugmannsklefanum. Þetta er svakalega flott læsing sem JVP lét mig hafa.
20210107_205103.jpg
20210107_205103.jpg (89.2 KiB) Skoðað 2600 sinnum
Og hér kemur læsingin að framan. Ég þurfti að skera dálítið úr rifinu til að læsingin geti gengið til.
20210107_213459.jpg
20210107_213459.jpg (101.96 KiB) Skoðað 2600 sinnum
Þá er hægt að líma niður 0,4mm krossvið yfir mælaborðið.
20210109_125529.jpg
20210109_125529.jpg (123.12 KiB) Skoðað 2600 sinnum
Það fer líka 0,4mm krossviður yfir hrygginn á vélinni. Ég set hann á í sjö bútum frekar en að reyna að setja eitt stykki. Ég pússa krossviðinn niður til að koma í veg fyrir áberandi samskeyti og svo ætla ég að setja fylliefni líka.
20210109_131246.jpg
20210109_131246.jpg (132.93 KiB) Skoðað 2600 sinnum
Hér eru fjórir fyrstu hlutarnir komnir á. Þetta tekur langan tíma vegna þess að hver bútur verður að vera nokkuð þurr áður en næsti fyrir framan er settur á. Það kláraðist líka hjá mér límbandið, svo ég neyddist til að nota bara klemmur til að halda þeim.
20210109_154808.jpg
20210109_154808.jpg (144.18 KiB) Skoðað 2600 sinnum
8-)

Re: Scheibe SF-28 Tandem Falke

Póstað: 17. Jan. 2021 21:48:00
eftir Gaui
Nokkur smáatriði sem ég náði að ganga frá á helginni:

Ég setti læsingarnar fyrir glerið á sína staði. Límið sem ég notaði var Loctite 9462 Hysol, enda límir það hvað sem er við hvað sem er án þess að leka til eða renna. Hérna er aftari læsingin. Límið þrýstist í gegnum götin eins og hnoð.
20210116_130858.jpg
20210116_130858.jpg (84.35 KiB) Skoðað 2532 sinnum
Og fremri læsingin. Ég þurfti að skera smávegis frá til að geta staðsett læsinguna og líka skera smá af læsingunni sjálfri vegna þess að þilið þarna hallar svo mikið. Ég set svo meiri balsa og líklega smá krossvið til að fela þetta.
20210116_130904.jpg
20210116_130904.jpg (110.04 KiB) Skoðað 2532 sinnum
Þessi plata, sem er tvöföld og nær niður fyrir langböndin, kemur til með að halda stélfletinum á. Það kemur gaddaró þarna undir og bolti í gegnum stélflötinn festir hann niður.
20210116_130916.jpg
20210116_130916.jpg (133.24 KiB) Skoðað 2532 sinnum
Eftir heilmiklar mælingar er stélflöturinn kominn á sinn stað og stélkamburinn líka. Það er 3mm teinn sem gengur niður úr kambinum í kopar rör sem ég lími á aftasta rifið.
20210116_154003.jpg
20210116_154003.jpg (111.48 KiB) Skoðað 2532 sinnum
Hér er rörið að límast á rifið. Ég notaði Hysol hérna líka, því að þetta má ekki losna. Seinna set ég krossvið sitt hvoru megin við tunguna sem kemur niður úr kambinum og þar verður pinni sem heldur kambinum á. Þetta hljómar flókið, en er í raun sára einfalt.
20210116_154015.jpg
20210116_154015.jpg (110.29 KiB) Skoðað 2532 sinnum
Það er komið flugvélarlag á skrokkinn, en ég á eftir að losa hann af brettinu og setja alls konar dót neðan á hann.

8-)

Re: Scheibe SF-28 Tandem Falke

Póstað: 17. Jan. 2021 22:37:16
eftir Sverrir
Allt að gerast! 8-)

Re: Scheibe SF-28 Tandem Falke

Póstað: 18. Jan. 2021 10:46:07
eftir Ágúst Borgþórsson
Þetta er mikið grindverk :roll: og flott.

Re: Scheibe SF-28 Tandem Falke

Póstað: 18. Jan. 2021 10:59:43
eftir Gaui
Takk, félagar. Það er allt hægt!

8-)