Síða 2 af 4

Re: RV-4 35% Wendell Hostetler

Póstað: 13. Jan. 2021 22:20:06
eftir Ágúst Borgþórsson
Vængurinn er eginlega í þrennu lagi en miðjan á að límast undir skrokkinn. Vænghafið er 245,3cm. Þetta er ekki mín mynd, en svona á þetta að líta út :geek:

Re: RV-4 35% Wendell Hostetler

Póstað: 14. Jan. 2021 16:11:44
eftir Gaui
Flott. Gaman að fylgjast með.

Re: RV-4 35% Wendell Hostetler

Póstað: 19. Jan. 2021 14:34:02
eftir Ágúst Borgþórsson
Afram skal haldið og skrokkurinn farinn að taka á sig mynd

Re: RV-4 35% Wendell Hostetler

Póstað: 19. Jan. 2021 15:49:51
eftir Sverrir
Stórglæsilegt! Frumflug eftir helgi... 8-)

Re: RV-4 35% Wendell Hostetler

Póstað: 19. Jan. 2021 17:04:20
eftir Ágúst Borgþórsson
Jahá! það er bara spurning um hvaða helgi :D

Re: RV-4 35% Wendell Hostetler

Póstað: 19. Jan. 2021 19:03:56
eftir Sverrir
Segðu! ;)

Re: RV-4 35% Wendell Hostetler

Póstað: 20. Jan. 2021 17:43:04
eftir arni
Flott hjá þér.

Re: RV-4 35% Wendell Hostetler

Póstað: 21. Jan. 2021 20:36:18
eftir Árni H
Vel gert og gaman að sjá vél eftir Hostetler skríða saman😀

Re: RV-4 35% Wendell Hostetler

Póstað: 4. Feb. 2021 15:35:10
eftir Ágúst Borgþórsson
Það skeður alltaf eitthvað smávegis. Árni, hafið þið Akureyringar verið að smíða eitthvað frá Hostetler?

Re: RV-4 35% Wendell Hostetler

Póstað: 4. Feb. 2021 17:24:14
eftir Gaui
Agúst
Við höfum ekki sett saman WH teikningu hér fyrir norðan, en við eigum svoleiðis og látum okkur dreyma.

Smá ábendingar:
* Settu trekanntlista úr balsa frekar en lím þar sem eldveggur og hliðar mætast. 25 til 30 mm trekanntlisti gerir rosalegt gagn þegar mótorinn er farinn að hamast þarna fyrir framan (hvaða svarta lím er þetta sem þú ert að nota?)
* Passaðu þig að setja festiskrúfur í gegnum endana á langa kolfíber rörinu. Þú mátt spyrja mig hvers vegna ég veit að það gegnur ekki að vera með það innst á stélfletinum.
* Fáðu Sverri til að sýna þér hvernig þú getur raðað inn myndum og sett texta á milli þeirra. Það er rosalega gaman að fá athugasemdir og skýringar við hverja mynd.

Annars er þetta ferlega flott smíði hjá þér mig langar að komast suður að sjá þessa smíði hjá þér.

8-)