Síða 3 af 4

Re: RV-4 35% Wendell Hostetler

Póstað: 4. Feb. 2021 17:35:43
eftir Ágúst Borgþórsson
Ertu að hugsa um lamirnar? :? Límið er hysol.

Re: RV-4 35% Wendell Hostetler

Póstað: 4. Feb. 2021 17:42:17
eftir Ágúst Borgþórsson
Kolfíberinn er inní álslíf og já ég held þú sért að hugsa um að veikja rörið ekki þar sem mest á reynir, er það ekki?

Re: RV-4 35% Wendell Hostetler

Póstað: 4. Feb. 2021 21:54:08
eftir Gaui
Ágúst Borgþórsson skrifaði: 4. Feb. 2021 17:42:17 Kolfíberinn er inní álslíf og já ég held þú sért að hugsa um að veikja rörið ekki þar sem mest á reynir, er það ekki?
Jú, það er það sem ég meina. Ef þú borar í kolfíber rörið inn við stélkamb, þá getur hann brotnað. Þú styttir svo bara lamirnar þannig að þær gangi ekki inn í ál rörið.
8-)

Re: RV-4 35% Wendell Hostetler

Póstað: 17. Feb. 2021 13:16:32
eftir Ágúst Borgþórsson
Eg fór aðeins frammúr mér og límdi miðjuvænginn við skrokkinn, en komst svo að því að það var ekki tímabært :? Vængurinn á að halla niður um 1° að framan og það eru sko heilir 4mm. Síðan síðast er ég búinn að klæða vængi að hluta og smíða stélkamb og hliðarstýri. Smíðaði líka rif úr krossviði sem ég lími á endarifin þar sem vængirnir koma saman.

Re: RV-4 35% Wendell Hostetler

Póstað: 17. Feb. 2021 13:54:26
eftir Ágúst Borgþórsson
Ég má gera svo vel að saga vænginn af og fara eftir teikninguni. Við Gunni MX fórum að heimsækja Einar Pál á Tungubakka um helgina og þá fór Einar að tala um að þessi halli væri örugglega gefinn upp á teikninguni

Re: RV-4 35% Wendell Hostetler

Póstað: 17. Feb. 2021 15:23:57
eftir Ágúst Borgþórsson
Hérna er sniðugt apparat.
Emcotec ((Magnetic)) Connect Locking System for Wing, Tail or Canopy A85265

Re: RV-4 35% Wendell Hostetler

Póstað: 17. Feb. 2021 18:05:14
eftir Sverrir

Re: RV-4 35% Wendell Hostetler

Póstað: 4. Sep. 2021 21:40:10
eftir Ágúst Borgþórsson
Vængir klæddir að neðan og vængendar plankaðir eins og um trébát sé að ræða. Byrjað að tálga og hefla.

Re: RV-4 35% Wendell Hostetler

Póstað: 5. Sep. 2021 13:40:41
eftir Árni H
Vel gert!

Re: RV-4 35% Wendell Hostetler

Póstað: 13. Sep. 2021 15:52:25
eftir Ágúst Borgþórsson
Búinn að ofhugsa vængfestingarnar nógu lengi :roll: :roll: , niðurstaðan er bara samkvæmt teikningu :geek: