Síða 1 af 3

Re: Appelsínugulur 1 að skríða saman

Póstað: 25. Mar. 2008 16:27:48
eftir Árni H
Kardínálar Norðanpilta eru sem óðast að taka á sig mynd. Hérna er t.d. appelsínugulur 1, sem er æfing í
Messerschmittmálningu:

Mynd
Ég get mælt með því að menn reyni að sullast með airbrush og feluliti - það er þrælskemmtilegt!

Meira á www.flugmodel.is

Kveðjur,
Árni H

Re: Appelsínugulur 1 að skríða saman

Póstað: 25. Mar. 2008 16:40:13
eftir Þórir T
Flottur Árni!!!

Re: Appelsínugulur 1 að skríða saman

Póstað: 28. Mar. 2008 00:19:30
eftir Messarinn
Góður Laxi

hér er svo JA+109
Mynd
Kv Oblt.GH

Re: Appelsínugulur 1 að skríða saman

Póstað: 28. Mar. 2008 00:50:57
eftir Sverrir
Möltukrossinn klikkar ekki :)

Re: Appelsínugulur 1 að skríða saman

Póstað: 30. Mar. 2008 17:01:33
eftir Árni H
Úti kyngir niður snjó og vélin næstum því orðin klár - eiginlega bara eftir að redda einum vandræðabolta í pústið og
balgvanísera. Á meðan lætur maður sig bara dreyma um bláan himinn og hamingjusama sokka...

Mynd

Re: Appelsínugulur 1 að skríða saman

Póstað: 30. Mar. 2008 23:06:20
eftir Messarinn
Flottur Árni

Á ekki að setja appelsínugula Reichsverteidigungsband og hvernig er stélið málað...... leyndó kannski eða ?

hér er mynd af mér að mála messarann minn
Mynd

Kv Messarinn

Re: Appelsínugulur 1 að skríða saman

Póstað: 31. Mar. 2008 10:44:47
eftir Árni H
Reichsverteidigungsband kemur sterklega til greina. Góð mynd af þér - sannkallað "Golden Kodak Moment" :D

Re: Appelsínugulur 1 að skríða saman

Póstað: 31. Mar. 2008 11:24:43
eftir Gaui
Þú meinar "Goldener Agfa Moment"

Re: Appelsínugulur 1 að skríða saman

Póstað: 31. Mar. 2008 12:57:35
eftir Árni H
Jaaaa, oder Goldener Leica Moment! Sehr gut observiert, mein lieber Gottjuhann!

Re: Appelsínugulur 1 að skríða saman

Póstað: 31. Mar. 2008 17:09:14
eftir Björn G Leifsson
Flugfloti öxulveldanna eflist fyrir norðan heiðar meðan flugfloti bandamanna hérna megin siðmenningarmarka samanstendur af örfáum aflóga, úr sér gengnum hrófatildrum, mest úr síðasta stríði.
Bandamenn fljóta sem sagt, í anda Chamberlains gamla, sofandi að feigðarósi hér sunnan heiða. Kominn tími til að finna sér eitthvað til mótvægis við öxulveldi hins illa....Hmmmm... Mér hefur alltaf litist vel á Hörríkein, en kannski Spittfæjer eigi betur við.