Síða 55 af 60

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 16. Feb. 2020 20:57:13
eftir Árni H
Bara að prófa að setja inn mynd... :)

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 23. Feb. 2020 14:09:29
eftir Gaui
Þoturnar skríða áfram.

Vofan þarf að fá útblástursrör úr plasti:
20200223_112645.jpg
20200223_112645.jpg (105.61 KiB) Skoðað 2294 sinnum
Og þá er hægt að fara að klæða með plastfilmu. Þetta verður lang og erfitt verkefni og filman fer á í nokkrum bútum.
20200223_114934.jpg
20200223_114934.jpg (121.32 KiB) Skoðað 2294 sinnum
Á meðan er Árni að hefla til form á vængina á Migunni.
20200223_115657.jpg
20200223_115657.jpg (150.08 KiB) Skoðað 2294 sinnum
Hér er hæðarstýri á Vofunni klætt með silfurpappír og það sést glitta í annað hallastýrið.
20200223_121329.jpg
20200223_121329.jpg (113.89 KiB) Skoðað 2294 sinnum
Mummi kom ekki í dag, svo Blondie og Helmut ákváðu að ganga í skrokk á Veiðimanninum og gera götin stærri.
20200223_121743.jpg
20200223_121743.jpg (130.72 KiB) Skoðað 2294 sinnum
8-)

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 25. Feb. 2020 22:01:57
eftir Gaui
A þriðjudögum eru þotur smíðaðar. Við héldum að veðrið myndi setja strik í eihverja reikninga, en mínir menn voru undirbúnir undir hvað sem er.
20200225_213747.jpg
20200225_213747.jpg (100 KiB) Skoðað 2269 sinnum
Mummi kallar þetta Dúdda: þetta eru spjöld sem beina loftflæði inn í rótina á vængnum og í gegnum mótorinn. Mjög áberandi á Veiðimanninum.
20200225_202844.jpg
20200225_202844.jpg (91.17 KiB) Skoðað 2269 sinnum
Á sama tíma er Árni að hefla rétt form á hinn vænginn á Miguna.
20200225_202923.jpg
20200225_202923.jpg (118.45 KiB) Skoðað 2269 sinnum
Og ég að pakka Vofunni inn í Silfupappír.
20200225_203117.jpg
20200225_203117.jpg (124.02 KiB) Skoðað 2269 sinnum
Krossviður styrkir frambrúnir á Dúddanum.
20200225_210033.jpg
20200225_210033.jpg (76.54 KiB) Skoðað 2269 sinnum
Miguvængur límdur saman í eitt.
20200225_210040.jpg
20200225_210040.jpg (101.1 KiB) Skoðað 2269 sinnum
Hann tekur sig vel út sem höfuðskraut höfðingja frá Grænavatni.
20200225_210122.jpg
20200225_210122.jpg (146.54 KiB) Skoðað 2269 sinnum
Þessi Grænvetningur á það til að líma sjálfan sig við Miguna og auðvitað gerðist það líka núna.
20200225_211805.jpg
20200225_211805.jpg (149.51 KiB) Skoðað 2269 sinnum
Hér er Mummi að gluða Fast&Furious á Veiðimanninn, enda eru ávalar línur æskilegar.
20200225_211842.jpg
20200225_211842.jpg (97.79 KiB) Skoðað 2269 sinnum
Meiri Silfurpappír á Vofuna. Þó þetta séu litlir fletir, þá tekur ógurlegan tíma að klæða þetta. Plús maður þarf að fara extra varlega vegna þess að þetta er allt svo þunnt og brothætt.
20200225_212020.jpg
20200225_212020.jpg (86.85 KiB) Skoðað 2269 sinnum
8-)

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 1. Mar. 2020 15:14:58
eftir Gaui
Þotufréttir

Frá Vofusmíði. Það er enn verið að pakka Vofunni inn í silfurpappír.
Hér er hann ósléttur:
20200301_100114.jpg
20200301_100114.jpg (121.28 KiB) Skoðað 2230 sinnum
Og hér er hann sléttur:
20200301_105046.jpg
20200301_105046.jpg (131.99 KiB) Skoðað 2230 sinnum
Frá Veiðimanninum. Mummi var varla búinnn að pússa Fast&Furious Fylliefnið slétt en hann byrjaði að skera göt á skrokkinn.
Hér er hann að skera stórt gat ofan á skrokkinn.
20200301_104107.jpg
20200301_104107.jpg (121.27 KiB) Skoðað 2230 sinnum
Sem svo lítur svona út.
20200301_104251.jpg
20200301_104251.jpg (133.08 KiB) Skoðað 2230 sinnum
Og ekki nóg með það, heldur þurfti hann endilega að gera annað gat á botninn á Veiðimanninum.
20200301_110703.jpg
20200301_110703.jpg (99.49 KiB) Skoðað 2230 sinnum
Og svo tók hann stór stykki úr hliðunum á skrokknum til að koma stýrivélum fyrir.
20200301_114044.jpg
20200301_114044.jpg (125.82 KiB) Skoðað 2230 sinnum
Á meðan í Migunni.
Árni sá að Mummi var að gera göt, svo hann þurfti þá auðvitað að gera svoleiðis líka. Hann byrjaði á því að merkja vandlega hvar gatið átti að vera
20200301_111244.jpg
20200301_111244.jpg (138.15 KiB) Skoðað 2230 sinnum
Svo sagaði hann með stórri sög og skar með beittum hnífum.
20200301_113023.jpg
20200301_113023.jpg (104.38 KiB) Skoðað 2230 sinnum
Þá kom þetta svona út. Nú var hann kominn með gat.
20200301_114129.jpg
20200301_114129.jpg (136.33 KiB) Skoðað 2230 sinnum
Þá var spurning um að setja vænginn á, eins og við hinir, en Úbbs! hann passar ekki :-D
20200301_121849.jpg
20200301_121849.jpg (126.08 KiB) Skoðað 2230 sinnum
En Helmut og Blondie passa vel í sem flugmaður og áhangandi.
20200301_122329.jpg
20200301_122329.jpg (121.19 KiB) Skoðað 2230 sinnum
8-)

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 1. Mar. 2020 21:29:54
eftir Árni H
Já, Hemut og Blondi tóku svona "Cool runnings" á þetta og héldu að þau væru komin til Berlínar á leikana 1936 :D
IMG_20200301_122419(2).jpg
IMG_20200301_122419(2).jpg (246.41 KiB) Skoðað 2218 sinnum

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 8. Mar. 2020 17:04:35
eftir Árni H
Aðventuþoturnar mjakast áfram!

Ég biðst velvirðingar á myndgæðunum - ég var að prófa svona online videoeditor sem auðvitað sagði manni ekki fyrr en í blálokin að maður yrði að greiða allt að því ofurfé fyrir að ljúka myndbandinu í HD. Hef lent í þessu áður og læri greinilega ekki af reynslunni :roll:

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 8. Mar. 2020 23:09:56
eftir Gaui
Það eru all margar myndir í sarpinum í dag vegna þess að ég gleymdi að setja inn myndir á þriðjudaginn, svo ég ætla að skipta þotufrásögninni í þrentt. Auðvitað byrja ég á Vofunni.

Það er svakalegt verk að pakka Vofunni inn í silfurpappír. Þetta er ekki stórt módel, en klæðningin er flókin. Hér er vængurinn með silfupappír sem á enn eftir að strekkja.
20200303_204347.jpg
20200303_204347.jpg (114.47 KiB) Skoðað 2180 sinnum
Hér er silfurpappírinn farinn að skríða upp eftir hliðinni á skrokknum.
20200308_104721.jpg
20200308_104721.jpg (142.9 KiB) Skoðað 2180 sinnum
Það þarf að koma dálítið svart framan á skrokkinn, en til að það sé hægt verð ég að vita hvernig flugmannsklefinn passar á og hvar hann situr.
20200308_115335.jpg
20200308_115335.jpg (118.71 KiB) Skoðað 2180 sinnum
Það er ótrúlegt hvað módel breytast þegar maður setur flugmannsklega á þær :D

8-)

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 8. Mar. 2020 23:15:32
eftir Gaui
Og hér er sagt frá Veiðimanninum.

Hérna er Mummi búinn að búa til stýringar fyrir lokið ofan á skrokknum, svo það setjist rétt og færist ekki til í flugi.
20200303_221233.jpg
20200303_221233.jpg (101.4 KiB) Skoðað 2178 sinnum
Hér eru komnir búkkar fyrir servóið. Hann merkti fyrir það í miðju, en það færðist til hliðar eins og sést síðar.
20200308_111339.jpg
20200308_111339.jpg (99.46 KiB) Skoðað 2178 sinnum
Það þarf að gera göt á skrokkinn til að hægt sé að kasta Veiðimanninum á loft. Skrokkurinn nær ekki nógu langt niður undir vængnum til að hægt sé að ná góðu gripi, svo að tvö göt eru gerð, hvort sínu megin, sem hægt er að halda í.
20200308_115102.jpg
20200308_115102.jpg (87.29 KiB) Skoðað 2178 sinnum
Hér er Mummi að skrúfa servóið fyrir hæðarstýrið á sinn stað. Hann ætlar að láta hraðastillinn sitja undir servóbúkkanum. Þar ætti að fara vel um hann.
20200308_120522.jpg
20200308_120522.jpg (112.73 KiB) Skoðað 2178 sinnum
8-)

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 8. Mar. 2020 23:24:34
eftir Gaui
Að lokum er það Migan.

Vængurinn passaði loksins í rifuna á skrokknum. Árna fannst hláleg sú hugmynd sem við réttum honum að hafa vængin ósamhverfan, þannig væri það alls ekki á Migum í Rússíá.
20200303_203330.jpg
20200303_203330.jpg (151.99 KiB) Skoðað 2178 sinnum
Mikil gleðilæti urðu þegar Miguvængurinn var loksins kominn á sinn stað.
20200303_205435.jpg
20200303_205435.jpg (150.76 KiB) Skoðað 2178 sinnum
Og eftir "miklar" og "nákvæmar" mælingar var hann límdur "kyrfilega" með sekúndulími.
20200303_211621.jpg
20200303_211621.jpg (120.21 KiB) Skoðað 2178 sinnum
Hér sést kerfið sem Árni bjó til fyrir lokuna á lokinu. Þetta ætti að halda lokinu á sínum stað (vonum við).
20200308_104751.jpg
20200308_104751.jpg (89.99 KiB) Skoðað 2178 sinnum
Næsta verk er að koma stélkambinum fyrir á sínum stað. Hér er Árni að mæla fyrir honum á miðjum skrokknum.
20200308_105834.jpg
20200308_105834.jpg (153.82 KiB) Skoðað 2178 sinnum
Stélflöturinn kemur ofarlega á stélkambinn og það þarf að setja tvö rör í til að hægt sé að renna í stýrivírum fyrir hæðarstýrið. Þessi rör eru límd með hitalími. Það kemur svo í ljós hversu vel það heldur.
20200308_113905.jpg
20200308_113905.jpg (120.27 KiB) Skoðað 2178 sinnum
Hér er Árni svo að líma hina hliðina á stélkambinn. Næst verður hann settur á skrokkinn, ef allar spár ganga eftir.
20200308_120332.jpg
20200308_120332.jpg (146.35 KiB) Skoðað 2178 sinnum
8-)

Re: Smíðað á Grísará

Póstað: 15. Mar. 2020 13:21:03
eftir Gaui
Skúrkar eru ömmur meðvitaðir um sóttvarnir þessa dagana og gerðu tilraunir með ýmsan búnað til að halda aftur af smiti
20200315_101251.jpg
20200315_101251.jpg (153.03 KiB) Skoðað 2137 sinnum
Meira að segja Helmut og Blondi settu upp öndunargrímur.
20200315_101044.jpg
20200315_101044.jpg (149.44 KiB) Skoðað 2137 sinnum
Annars var Árni duglegastur við Miguna og hamaðist við að setja stélið á, eins og sést í þessum pósti. Hér er hann að bera stélið við Miguskrokkinn og reyna að ákveða hvar taka skuli rifu.
20200315_104116.jpg
20200315_104116.jpg (131.91 KiB) Skoðað 2137 sinnum
Rifan var svo gerð á besta stað við áköf fagnaðarlæti vistaddra, eins og sóttvarnir leyfðu.
20200315_105358.jpg
20200315_105358.jpg (152.65 KiB) Skoðað 2137 sinnum
Stélkambur með stélflötinn í var síðan prófaður í rifuna.
20200315_110047.jpg
20200315_110047.jpg (117.47 KiB) Skoðað 2137 sinnum
Spurning hvort þetta passar. Það þarf að kíkja þetta nákvæmlega.
20200315_110239.jpg
20200315_110239.jpg (147.84 KiB) Skoðað 2137 sinnum
Samanburður: Veiðimaðurinn hefur örlítinn vinning á Miguna.
20200315_110853.jpg
20200315_110853.jpg (152.95 KiB) Skoðað 2137 sinnum
Hér er Mummi búinn að klippa til flugmannsklefann og stilla honum á (það er hvít varnarfilma á klefanum).
20200315_112020(0).jpg
20200315_112020(0).jpg (131.57 KiB) Skoðað 2137 sinnum
Nú vantar flugmann, svo mál er tekið af Mummanum.
20200315_112237.jpg
20200315_112237.jpg (153.1 KiB) Skoðað 2137 sinnum
Á meðan er Vofan komin með allan þann silfurpappír sem þarf. Nú vantar bara svart.
20200315_113105.jpg
20200315_113105.jpg (139.17 KiB) Skoðað 2137 sinnum
Mummi byrjaður að tálga kall. Hann er ekki stór (kallinn, ekki Mummi), svo þetta ætti ekki að taka mikinn tíma.
20200315_113220.jpg
20200315_113220.jpg (90.48 KiB) Skoðað 2137 sinnum
Þegar stélkambar eru límdir á þotur, þá þarf að kíkja allt nákvæmlega áður en líminu er sullað á.
20200315_113446.jpg
20200315_113446.jpg (144.36 KiB) Skoðað 2137 sinnum
Og svo er límt.
20200315_113845.jpg
20200315_113845.jpg (114.61 KiB) Skoðað 2137 sinnum
og límt.
20200315_113856.jpg
20200315_113856.jpg (128.06 KiB) Skoðað 2137 sinnum
Á meðan er Vofan komin með svart. Þetta þýðir að öll plastfilma er komin á hana og nú má fara að líma stýrin á og finna flugkall.
20200315_120334.jpg
20200315_120334.jpg (136.42 KiB) Skoðað 2137 sinnum
8-)