Síða 29 af 31

Re: Fokker D.VIII

Póstað: 11. Nóv. 2013 15:19:24
eftir Árni H
Enn er dundað í Fokkernum. Væng- og hjólastellsstífur klárar undir málningu og s.l. sunnudag var byrjað á dekkjunum með aðstoð Unga Adolfs...
Mynd
Eva var svona líka yfir sig hrifin af félaganum...
Mynd

Svo var brunað í slippinn og tekin aðalskoðun á Bixler, lóðað og límt þangað til loftfærnisskírteinið endurnýjaðist. Mummi tók líka törn á sínum Bixler til að koma í veg fyrir frekari rugling í loftinu - meira um það síðar :)
Mynd

Re: Fokker D.VIII

Póstað: 22. Des. 2013 14:08:53
eftir Árni H
Þá eru það merkingar frá fyrri heimsstyrjöld. Stensillinn borinn við...
Mynd

Og merkingin komin á eins og Günther málaði þær í októberlok 1918 :)
Mynd

Re: Fokker D.VIII

Póstað: 22. Des. 2013 21:41:04
eftir Gaui
Hérna eru nokkrar myndir teknar á meðan Árni var að setja þennan stensil á Fokkerinn:

Fyrst þarf að stilla honum rétt af. Athugið að bakhliðin á þessum miða er húðuð með teiknikolum.
Mynd

Næst er að teikna með blýanti ofan í letrið á stenslinum. Þá færist kolasallinn af miðanum á hliðina á módelinu.
Mynd

Freyja þarf að athuga að allt sé gert eftir öllum reglum og boðorðum.
Mynd

Hér er letrið komið á hliðina. Þetta er teiknikol og færi allt ef maður nuddaði það smá með tusku.
Mynd

Og svo er málað yfir með svartri málningu og 3x0 pensli. Árni kvartaði sáran undan því að við hinir værum að ganga um og reka okkur óvart i hann á meðan hann málaði. Ég skil ekki af hverju og Mummi veit ekkert heldur.
Mynd

:cool:

Re: Fokker D.VIII

Póstað: 12. Jan. 2014 13:40:35
eftir Árni H
Merkingarnar setja óneitanlega mikinn svip á Fokkerinn. Minn er með svona ör á hliðinni til aðgreiningar frá hinum svo að ég taki nú ekki einn Patró á þetta þegar við tökum samflugið ;)

Mynd

Re: Fokker D.VIII

Póstað: 24. Feb. 2014 17:49:14
eftir Árni H
Unnið í hjólastellinu.
Mynd

Á meðan sá Mummi um sögustundina!
Mynd

Re: Fokker D.VIII

Póstað: 24. Feb. 2014 19:24:25
eftir Messarinn
Flottir
Lítill þessi fiskur sem Mummi veiddi ;)

Re: Fokker D.VIII

Póstað: 19. Mar. 2014 11:30:52
eftir Árni H
Kínamótor #3 rann saman í gærkvöldi - nú er bara eftir að skrúfa utaná hann blöndung, púst og kveikju. Ég get bara mælt með svona "kit mótorum", það er býsna gaman að föndra við þetta :)
Mynd

Re: Fokker D.VIII

Póstað: 27. Apr. 2014 13:30:04
eftir Gaui
Enn eru heimsviðburðir að gerast að Grísará:

Árni og Mummi uppteknir við eitthvað:
Mynd

Sko bara: mótorinn kominn í:
Mynd

Það þarf að hyggja að ýmsu með svona nýja mótor:
Mynd

Og svo er að máta vélarhlífina -- hún virðist passa:
Mynd

:cool:

Re: Fokker D.VIII

Póstað: 27. Apr. 2014 13:39:10
eftir Óli.Njáll
Já þessar Sunnudags messustundir skila mörgu góðu, flott hjá ykkur og Árna :D

Re: Fokker D.VIII

Póstað: 1. Jún. 2014 11:44:25
eftir Árni H
Smí?amorgunn eftir kosninganótt :)

Mynd