Síða 31 af 31

Re: Fokker D.VIII

Póstað: 18. Nóv. 2017 17:04:56
eftir Árni H
Borist hefur umsókn um flugmannsstöðuna í Fokkernum frá Gunther Killer nokkrum, sem skreið út úr prentaranum hjá okkur til þess að skoða aðstæður. Hann er að vísu með höfuðfat frá rangri styrjöld þannig að annaðhvort verður hann að gangast undir smávægilega lýtaaðgerð eða láta stöðuna af hendi til bróður síns, sem mun gægjast út úr prentaranum innan skamms.

Mynd

Þrívíddarprentun er snilld!

Re: Fokker D.VIII

Póstað: 18. Nóv. 2017 17:31:02
eftir einarak
Þetta er glimrandi snilld!

Re: Fokker D.VIII

Póstað: 28. Maí. 2018 22:30:57
eftir Árni H
Frændi Gunthers, hann Manfred er með bölvaða óþægð og mætir hálfheilalaus úr prentaranum í hvert sinn sem honum er boðið upp á endurfæðingu :) Það er gaman að glíma við þrívíddarprentun en það má ekkert út af bera - þá fer allt til fjandans!
Mynd Mynd

Re: Fokker D.VIII

Póstað: 6. Sep. 2018 08:37:05
eftir Árni H
Þau Helmut og Blondi hafa verið afar hjálpsöm við sminkið á þriðja félaganum, honum Killer (já, Killer er þýskt nafn) :)

Mynd

Re: Fokker D.VIII

Póstað: 26. Júl. 2019 23:10:29
eftir Gaui
Þá hefur einn Fokkerinn loksins flogið. Hér eru myndir sem Árni tók á Melunum á fimmtudag:

Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd

Ég tók ekki eftir því að boltarnir sem halda vængnum eru næstum dottnir úr fyrr en ég var að taka saman. Vá, hvað ég slapp fyrir horn þarna! Ég er búinn að líma boltana í aftur.
Mynd
Mynd

:cool:

Re: Fokker D.VIII

Póstað: 27. Júl. 2019 15:11:39
eftir Sverrir
Til hamingju!

Re: Fokker D.VIII

Póstað: 27. Júl. 2019 22:24:43
eftir RT
Til Hamingju Guðjón,
glæsilegt,
svona model eru ekki hrist fram úr ermi.
Rafn

Re: Fokker D.VIII

Póstað: 28. Júl. 2019 09:23:32
eftir Gaui
Takk piltar, takk.

:cool: