Farmhand 90 - Fjósamaðurinn

Sýnið hvað þið eruð að smíða eða setja saman
Svara
Passamynd
Gaui
Póstar: 3631
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn

Póstur eftir Gaui »

Nú þegar mótorinn er kominn á er hægt að ganga frá servóinu fyrir inngjöfina, setja tankinn á sinn stað og búa til áfyllingarsystemið.

Áfyllingin er smá pjatla af kopar og tvö rör. Ég er með þetta svona á Super Cub og finnst mjög gott. Þess vegna náði ég mér í smá koparplötu og tvö rör sem ég lóðaði föst á plötuna. Svo skrúfaði ég plötuna undir botninn á nefinu:

Mynd

Slöngurnar úr tanknum þurfa að liggja niður að þessum rörum og til að halda þeim datt mér í hug að prófa smá búta af rennu fyrir rafmagnsvíra (bara innri hlutann, ekki kápuna). Slöngurnar pössuðu nákvæmlega í og rennurnar voru límdar á sinn stað, enda með tvöfalt límband á bakinu. Miklu betra en ég hafði vonast eftir og virkar eins og píanó.

Mynd

Þá var komið að servóinu fyrir inngjöfina. Ég uppgötvaði að það er hægt að nota bara einfaldan tein úr suðuvír og lóðaði klemmu á hann sem tengist við blöndunginn. Svo staðsetti ég servóið fyrir aftan tankinn og bjó til festingu úr afgangs krossviði fyrir það:

Mynd

Það er ekki mikið sem ég get gert í skrokknum fyrr en vængurinn er tilbúinn, en það er aldrei að vita nema ég finni eitthvað. :cool:
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11420
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn

Póstur eftir Sverrir »

Gefa í maður, þarf að vera tilbúin fyrir næsta laugardag! :cool:
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Valgeir
Póstar: 185
Skráður: 11. Maí. 2009 19:21:06

Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn

Póstur eftir Valgeir »

Væri kanski líka áhugavert að sýna módel í smíðum á sýninguni.
"I'm in love whit my bed, we're perfect for eachother,
but my alarm clock just doesn't seem to want us together.
Jealous whore."
Adam Sandler
Passamynd
Gaui
Póstar: 3631
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn

Póstur eftir Gaui »

Það hefur löngum verið hefð hér fyrir norðan að þegar ný módel koma og vélarhlífin er fundin, þá setur Árni Hrólfur hana á höfuðið og mynd er tekinn. Ég er tilbúinn með vélarhlífina á Fjósamanninn og Árni stillti sér upp. En það var ekki nóg að hafa bara "hjálm" -- hann varð að hafa "sverð" og "skjöld" líka:

Mynd
:cool:
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Árni H
Póstar: 1585
Skráður: 7. Okt. 2004 10:54:00

Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn

Póstur eftir Árni H »

Farmhandcam:
Mynd
Passamynd
maggikri
Póstar: 5603
Skráður: 2. Júl. 2005 01:26:30

Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn

Póstur eftir maggikri »

Ég og Sigurður Sindri kíktum við á Grísará á sunnudaginn í glymjandi sveitamarkaðstónlist. Það var ekki hægt að renna framhjá án þess að kíkja við. Hitti líka Árna Hrólf í Bónus.

Formennirnir í góðum gír fyrir framan Farmhand vélina.
Mynd

kv
MK
Passamynd
Agust
Póstar: 2984
Skráður: 23. Apr. 2004 06:34:18

Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn

Póstur eftir Agust »

Einkennisstafirnir á svona vél sem ber nafn Fjósamannsins er væntanlega TF-FOR.

(Auðvitað tengist það ekkert hlandFOR, sem Fjósamaðurinn mokar baki brotnu, ef ég man rétt frá því er ég gegndi þessu fína embætti).
Bestu kveðjur
Ágúst H Bjarnason
Þytur
http://www.agust.net
Passamynd
Gaui
Póstar: 3631
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn

Póstur eftir Gaui »

Aðrar merkingar gætu verið:

TF-FLR = flór
TF-SKT = skítur
TF-TAÐ
TF-MOÐ
TF-KÝR
TF-TDI = tuddi
TF-BÁS
TF-FJS = fjós

og svo er hægt að fara í erlendu tungumálin

TF-COW
TF-BUL
TF-CTL = cattle

Ef áburðardreifing er tekin með, þá spretta upp stafirnir

TF-TÚN
TF-MEL
TF-FRÆ
TF-DRF = dreifing

Möguleikarnir eru margir :cool:
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Gaui
Póstar: 3631
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn

Póstur eftir Gaui »

Ég sat við í morgun og horfði á Steve á DVD diskinum. Þar sá ég ýmislegt sem hann minnist ekki á og ekki er talað um í leiðbeiningunum -- þetta módel er greinilega ætlað þeim sem hafa smíðað eitthvað smá áður!

Eitt sem ég sá var vængsætið. Hann hefur greinilega sett þykkan balsa innan á vængsætið til að gera það þykkara, svo ég snikkaði til nokkra 10mm þykka balsakubba og límdi þá á mitt vængsæti:

Mynd

Þegar ég var búinn að skera þá til og pússa, þá leit þetta svona út:

Mynd

:cool:
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Björn G Leifsson
Póstar: 2914
Skráður: 24. Apr. 2004 01:14:45

Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn

Póstur eftir Björn G Leifsson »

[quote=Gaui]Aðrar merkingar gætu verið:

TF-FLR = flór
TF-SKT = skítur
TF-TAÐ
TF-MOÐ
TF-KÝR
TF-TDI = tuddi
TF-BÁS
TF-FJS = fjós

og svo er hægt að fara í erlendu tungumálin

TF-COW
TF-BUL
TF-CTL = cattle

Ef áburðardreifing er tekin með, þá spretta upp stafirnir

TF-TÚN
TF-MEL
TF-FRÆ
TF-DRF = dreifing

Möguleikarnir eru margir :cool:[/quote]
Hvaða vitleysa, aðeins einn möguleiki hvað mig varðar og það er:

TF-JÓS

Fyrir ykkur þarna uppi við norðurskaut þá gæti TF-LÓR komið til greina,,, nú eða þá TF-MÚÚ eða jafnvel TF-MUU
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong"
H.L. Mencken
Svara