Lancair arf

Sýnið hvað þið eruð að smíða eða setja saman
Passamynd
einarak
Póstar: 1540
Skráður: 7. Nóv. 2006 08:16:54

Re: Lancair arf

Póstur eftir einarak »

svo er þetta alltaf möguleiki http://www.rcvengines.com/rcv120sp.htm
Messarinn er með svona í Messerschmitt Mynd
http://frettavefur.net/Forum/viewtopic.php?id=99&p=1

Svo er gírunin 2:1 þannig þú gætir verið með storan skalalegan 3 eða 4 blaða prop.
lulli
Póstar: 1244
Skráður: 1. Des. 2006 21:14:09

Re: Lancair arf

Póstur eftir lulli »

[quote=Sverrir]Svo mætti líka skoða DLE 30.[/quote]
Þessi er flottur Sverrir, en(var) ekki í stokk.

...Og EinarAk fyrir þann sem þú bentir á; Það þarf Messrara fyrir svona snilld og helst kreppulok.



En þessi, Mynd
hinsvegar er á miðri leið einhverstaðar til landsins.

Í biðinni hef ég ekki mikið gert, en þó gæti ég kanski sagt frá því að mér fannst rudder-teinnin
of "mjúkur" og setti bara smá skorðu með plastfóðringu ,þetta bráðlagaði mjúkheitin í hvelli.
Mynd
Kv. Lúlli.
Flugmódelfélagið Þytur
Flugmódelfélag Suðurnesja
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11432
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Lancair arf

Póstur eftir Sverrir »

Það er betra að einangra rafhlöðuna frá víbringnum í skrokknum.
Icelandic Volcano Yeti
lulli
Póstar: 1244
Skráður: 1. Des. 2006 21:14:09

Re: Lancair arf

Póstur eftir lulli »

[quote=Sverrir]Það er betra að einangra rafhlöðuna frá víbringnum í skrokknum.[/quote]
Takk Sverrir ;) , Þetta er einmitt kosturinn við að pósta inn samsetningunni ,að glöggir/færir
félagar sjái það sem annars, byrjendurnir vaða áfram í þokunni.. ..í villunni..
Ég get ekkert verra hugsað mér en straumrof - Á FLUGI.
Jæja ,batteríið liggur nú bara þarna ófest ,og ég hef enn ekki hugmynd um hvar það endar,
því mótorinn ræður víst mestu um ballansinn þegar hann loksins kemurí hús.
Kv. Lúlli.
Flugmódelfélagið Þytur
Flugmódelfélag Suðurnesja
lulli
Póstar: 1244
Skráður: 1. Des. 2006 21:14:09

Re: Lancair arf

Póstur eftir lulli »

smá tos með Lancair,þar sem hinn ofurnetti 26cc TGY er kominn, gerir það eftirleikinn mögulegann
,þ.e. ganga frá tanki ,staðsetja rx rafhlöðu og margt smálegt ótalið..
Mynd
"Það væri bara verra að hafaðað betra"
Mynd
Það sem þeir HK menn segja um þennann mórtor er orðrétt "A HUGE POWER from A TINY ENGINE"
ekkert smá loforð það!!!
Flugmódelfélagið Þytur
Flugmódelfélag Suðurnesja
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11432
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Lancair arf

Póstur eftir Sverrir »

Þegar þú ert í svona útskurði reyndu að hafa hornin rúnuð það minnkar líkurnar á að það springi út frá þeim síðar meir.
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Gaui K
Póstar: 449
Skráður: 2. Maí. 2004 23:07:17

Re: Lancair arf

Póstur eftir Gaui K »

Þetta verður flott.Ertu búinn að trekkja í gang?
lulli
Póstar: 1244
Skráður: 1. Des. 2006 21:14:09

Re: Lancair arf

Póstur eftir lulli »

[quote=Gaui K]Þetta verður flott.Ertu búinn að trekkja í gang?[/quote]
Takk, en nei ekki gangsettur ennþá, ég er ekki einusinni viss um að ég tilkeyri neitt
á jörðu þeir eru búnir að prufu-gangsetja í verksmiðju það stemmir því það er ekta bensínkeimur
úr kassanum.
Get ekki alveg sinnt þessu sem skildi þar sem Patrol mótorinn er búnn að fara 2svar á árinu.
Enginn fjallapatrol = Engin vinna = Róa sig í hobbíinu ...eða þannig...
Kv. á Selfossinn
Lúlli. (gamall austanbúi)
Flugmódelfélagið Þytur
Flugmódelfélag Suðurnesja
lulli
Póstar: 1244
Skráður: 1. Des. 2006 21:14:09

Re: Lancair arf

Póstur eftir lulli »

[quote=lulli][quote=Gaui K]Þetta verður flott.Ertu búinn að trekkja í gang?[/quote]
Takk, en nei ekki gangsettur ennþá, ég er ekki einusinni viss um að ég tilkeyri neitt
á jörðu þeir eru búnir að prufu-gangsetja í verksmiðju það stemmir því það er ekta bensínkeimur
úr kassanum.
Lúlli.[/quote]
Gaui K. Nú verð ég að éta oní mig þetta með tilkeyrsluna =D =D, því ég varð tortrygginn
þegar ég sá að báðar skrúfurnar voru lausar fyrir kveikjutímann, því fór ég gagngert bara til að kynda upp. Hún er ekki ennþá nógu rétt á CG. til að sleppa jörðu. (afturþung)
Mótorinn fór fljótt í gang, og gekk ágætlega utan hægagangs.
Enn hefur enginn verið ráðin í gróðurhúsið og eins þarf ég að búa til hjólacowl á nefhjólið.
Kv. Lúlli.

Öryggið tryggt, ef línan slitnar - tekur Patrolinn við...
Mynd
Það skiftust á skin og skúrir.
Mynd
Og í gang fór hún.
Mynd
Góðar stundir =)
Flugmódelfélagið Þytur
Flugmódelfélag Suðurnesja
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11432
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Lancair arf

Póstur eftir Sverrir »

Lofar góðu en eru aðalhjólin ekki frekar innskeif hjá þér gamli minn?
Icelandic Volcano Yeti
Svara