Carl Goldberg Extra 300

Sýnið hvað þið eruð að smíða eða setja saman
Svara
Passamynd
einarak
Póstar: 1540
Skráður: 7. Nóv. 2006 08:16:54

Re: Carl Goldberg Extra 300

Póstur eftir einarak »

Ég var að eignast gamalt Great Planes Carl Goldberg Extru kit sem fyrri eigandi var aðeins byrjaður að setja saman fyrir einhverjum árum síðan. En það er ávalt galli á gjöfum Njarðar því það vantar vængrifin og sparin fyrir annan vænginn (það er einhvað með mig og að eignast flugvélar sem vantar vængina á... :|). Vængrifin eru ekkert mál því öll rifin í annan vænginn voru á sínum stað og kem ég til með að skanna þau inn og skera út annað sett. Hinsvegar vantar mig við í sparið í annan vænginn sem eru skv teikningum par af 3/8" 35" Bass-wood. Er þetta einhvað sem maður verður að panta sér frá útlöndum eða fáum við þetta hérna heima?

Myndir af smíðinni koma svo "as they happen"


Mynd
Passamynd
Gaui
Póstar: 3639
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Carl Goldberg Extra 300

Póstur eftir Gaui »

Þú getur notað 10mm furulista eins og fást í Tómó. Svo getur þú annað hvort pússað nðurþennan hálfa millimetra sem 10mm eru stærri en 3/8" eða stækkað raufarnar á rifjunum (sem er líklega auðveldara). 35 tommur er ekki nema 88sm, og furulistarnir eru allir einn metri, svo þú ert í góðum málum :)

:cool:
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Jónas J
Póstar: 528
Skráður: 21. Júl. 2009 16:57:14

Re: Carl Goldberg Extra 300

Póstur eftir Jónas J »

Flott vél. Gangi þér vel við smíðarnar :) Verður gaman að fylgjast með ;)
Í pásu :)

Kveðja Jónas J
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11427
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Carl Goldberg Extra 300

Póstur eftir Sverrir »

[quote=einarak]Ég var að eignast gamalt Great Planes Carl Goldberg Extru...[/quote]
Lofar góðu, skemmtilegar vélar! :)

Ef ég má vera smámunasamur, og ef þetta er „gamalt“ kit þá er það bara Carl Goldberg eða Goldberg Extra í daglegu tali. Bara svona fyrir þá sem þekkja ekki söguna. ;)
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
einarak
Póstar: 1540
Skráður: 7. Nóv. 2006 08:16:54

Re: Carl Goldberg Extra 300

Póstur eftir einarak »

Ok takk fyrir það, ég kíki á vini mína í tómó.
[quote]Ef ég má vera smámunasamur, og ef þetta er „gamalt“ kit þá er það bara Carl Goldberg eða Goldberg Extra í daglegu tali. Bara svona fyrir þá sem þekkja ekki söguna. ;)[/quote]
Ollrætí, ég hélt að Carl Goldberg línan væri bara svona "deild" innan GP :D


Svo á eftir að ákveða power plantið, en það verður annaðhvort O.S.91 two stroke, eða einhver >20cc gasser, veit ekki hvort er físilegra, en hún verður væntanlega töluvert léttari með nítróhreyflinum
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11427
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Carl Goldberg Extra 300

Póstur eftir Sverrir »

Þér er fyrirgefið! Mynd

DLE20 er 100 grömmum þyngri en OS 91 FX(án hljóðkúts), DLE30 er 360 grömmum þyngri.
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Gaui
Póstar: 3639
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Carl Goldberg Extra 300

Póstur eftir Gaui »

Svo er besnín ódýrara en módeleldsneyti og fáanlegt á öllum bensínstöðvum.

:cool:
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Árni H
Póstar: 1585
Skráður: 7. Okt. 2004 10:54:00

Re: Carl Goldberg Extra 300

Póstur eftir Árni H »

Þegar 5 lítra brúsi af 4stroke eldsneyti kostar á milli 6 og 7 þúsund kall kemur varla til greina að setja annað en bensínmótor í svona vél! Getur annars verið að kittið vængstýfða hafi stungið niður fæti hérna fyrir norðan fyrir nokkrum árum síðan?
Passamynd
einarak
Póstar: 1540
Skráður: 7. Nóv. 2006 08:16:54

Re: Carl Goldberg Extra 300

Póstur eftir einarak »

Það er alveg satt, rekstrakostnaðurinn verður alveg fimm faldur en ef maður er að spá í power to weight ratio þá hefur nitróið náttúrulega vinninginn. Ég veit ekki hvar hún hefur millilent áður en ég eignaðist hana, en það kæmi mér svosum ekkert á óvart að það hafi farið víða. Ég eignaðist þetta kit ásamt öðru frá vini vinar sem er hættur í sportinu og fluttur úr landi.
Svara