Þsð er sennilega öllum þáttakendum og gestum í fersku minni þegar Fly Baby tók sundsprett í Seltjörn á afmælishátíð FMS. Sem betur fer voru skemmdir ekki miklar, en það komu í ljós ýmis atriði sem ég vil gjarnan laga áður en ég sendi hana aftur í loftið, og leyfa ykkur að fylgjast með framkvæmdum
Það lék grunur á að eitthvað hafi gefið sig í stjórnflötunum sem endaði með sundferðinni, og þess vegna var tekið á lömunum i stélinu sem enn voru heilar.
Við nánari athugun kom í ljós að lamirnar voru illa slitnar af langri notkun, og greinilega kominn tími á endurnýjun.
Það sýndi sig enn betur þegar ég var búinn að strippa klæðningunni af, það þurfti ekki mikið átak til að ýta löminni út:
En ekkert væl, gömlu blaðlamirnar voru grafnar út, smá balsi og spasl komu öllu í réttan gír. Þar sem ég var svo forsjáll að panta vænan skammt af stórskalalömum frá Hróbjarti sem áttu nú upphaflega að fara í flapsa á langtímaverkefni sem við tölum um síðar :p þá komu þær sér vel núna.
Pinnalamirnar þurfa smá meira kjöt til að límast vel, vænn slurkur af balsa reddar því:
Lamirnar mátaðar, lítur vel út
Hæðarstýrið mátað við, samt smá vinna eftir til að fá allt til að flútta vel saman:
Nokkrar mínútur með rúnnþöl:
Og allt smellur saman
Smá fylliefni, og smá stund með sandpappír:
Og síðan að henda klæðningu á
Meira síðar....
Fly Baby viðgerð
Re: Fly Baby viðgerð
Hrannar Gestsson, Patreksfirði
The knack of flying is learning how to throw yourself at the ground and miss.
Douglas Adams
The knack of flying is learning how to throw yourself at the ground and miss.
Douglas Adams
Re: Fly Baby viðgerð
Flott vinna hjá þér, Hrannar. Gaman að fá að fylgjast með þessu.
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Re: Fly Baby viðgerð
Sæll endilega duglegur að pósta inn fréttum, gaman að þessu, og flott hjá þér.
Langar að vita miklu meira!
Re: Fly Baby viðgerð
Hún var blýþung!
Kv. Guðjón Bergmann, s: 6690069
---
"Ég vona að dag einn verði ég eitthvað meira en meðlimur" - Guðjón Bergmann, meðlimur
---
"Ég vona að dag einn verði ég eitthvað meira en meðlimur" - Guðjón Bergmann, meðlimur
Re: Fly Baby viðgerð
Hér gengur á með Gaujum....Enn Hrannsi sko elsku vinur minn í Duxford.Var að saga lekktu í vængrif í Cardinalan minn og rak olbogan í FlyBaby og hún í gólfið sko:-)...hehehe nei nei elsku mjólki minn bara djók,Og sendu nú myndir fyrir okkur hina á klakanum af því sem að þú sérð í Duxford
Gísli Einar Sverrisson.MSV Patreksfirði
Hef ekki enn séð endirinn á þessari flugdellu.
Hef ekki enn séð endirinn á þessari flugdellu.