Síða 1 af 63

Re: Smíðað í Arnarhreiðrinu

Póstað: 21. Ágú. 2012 00:27:42
eftir Sverrir
Sólin farin að lækka á lofti og styttist í Ljósanæturflugkomuna, ekki seinna vænna að nýta kvöldin í smá smíðafjör.

Gunni og Gústi að störfum í Cub-num.
Mynd

Re: Smíðað í Arnarhreiðrinu

Póstað: 22. Ágú. 2012 00:34:33
eftir Sverrir
Nóg að gera í Cub í kvöld ásamt því sem Arnarvöllurinn var brúkaður. Gleymdi reyndar að mynda nokkra af gestum Arnarhreiðursins í kvöld en þeir fyrirgefa mér það vonandi.

Ídráttarrör komið í vænginn ásamt servói.
Mynd

Ný framrúða í smíðum.
Mynd

Smá snikkeringar.
Mynd

Hópmynd frá Gauanum. sjá hér
Mynd

Málin rædd við kaffiborðið.
Mynd

Lesefni í stíl við nafnið. ;)
Mynd

Það þarf ágætis magn af filmu á svona litla vél.
Mynd

Allt að gerast, nei þetta er ekki grár litur en hulunni verður vonandi svipt af endurbættum Cub á Ljósanæturflugkomunni.
Mynd

Re: Smíðað í Arnarhreiðrinu

Póstað: 23. Ágú. 2012 00:04:00
eftir Sverrir
Losnum vonandi við S hliðarstýrið með smá stífingum.
Mynd

Mynd

Krossviðsrif til styrktar á vel völdum stöðum.
Mynd

Re: Smíðað í Arnarhreiðrinu

Póstað: 23. Ágú. 2012 11:32:02
eftir einarak
[quote=Sverrir]Losnum vonandi við S hliðarstýrið með smá stífingum.
Mynd
[/quote]

er aflgjafinn ætlaður til að hlaða sviflugurnar á flugi?

Re: Smíðað í Arnarhreiðrinu

Póstað: 23. Ágú. 2012 14:50:03
eftir Sverrir
Hann hefur gert það hingað til svo það er engin ástæða til að ætla að hann ráði ekki við það áfram. :)

Re: Smíðað í Arnarhreiðrinu

Póstað: 23. Ágú. 2012 16:12:25
eftir Gauinn
ÞÉR fyrirgefst allt Sverrir.
Það var gaman að koma til ykkar, er og verður skemmtilegt hjá ykkur í vetur að hittast þarna.

Re: Smíðað í Arnarhreiðrinu

Póstað: 23. Ágú. 2012 18:39:24
eftir Sverrir
[quote=einarak]er aflgjafinn ætlaður til að hlaða sviflugurnar á flugi?[/quote]
Ah, sá ekki myndina sem fylgdi í símanum... þetta er spennubreytir kjánaprik! ;)

Re: Smíðað í Arnarhreiðrinu

Póstað: 23. Ágú. 2012 22:16:18
eftir einarak
Ahh! Enda hefði verið smekklegra að smíða hann inn í stélið ef það ætti að nota hann fyrir in flight charging! :P

Re: Smíðað í Arnarhreiðrinu

Póstað: 23. Ágú. 2012 22:56:26
eftir Sverrir
Segðu, hefðum ekki þurft nema ~7 kg af blýi fram í nef... :D

Re: Smíðað í Arnarhreiðrinu

Póstað: 25. Ágú. 2012 23:29:40
eftir Sverrir
Nýji vængurinn í snikkeringum.
Mynd

Eitthvað þurfti að fjarlægja af balsa.
Mynd

Gunni málari.
Mynd

Gamla lakkið var hreinsað af vélarhlífinni.
Mynd

Gömlum götum lokað og gert við misfellur.
Mynd

Fylligrunnur, spartl, pússa og endurtaka eftir þörfum.
Mynd

Nýsprautuð og fín.
Mynd

Svo fór hún í skurðaðgerð og aðra umferð af lakki.
Mynd