Smíðað í Módelsmiðjunni

Sýnið hvað þið eruð að smíða eða setja saman
Passamynd
Spitfire
Póstar: 412
Skráður: 6. Ágú. 2006 12:16:01

Re: Smíðað í Módelsmiðjunni

Póstur eftir Spitfire »

Vetrardagskrá MSV hófst með pomp og prakt föstudagskveldið 14. september, mikið spjallað, límt, pússað og dúkað.

Gísli "Der führer" föndraði við væng á Breiðskrokk, okkar official hirðljósmyndari Janus setti aukabúnað í Bixler og Ingimundur Orkubústjóri fór hamförum með straujárnið við að hressa upp á væng á Tutor.
Mynd

Matsveinninn og foringinn í ráðgjafahlutverkinu:
Mynd

Bixler græjaður í flugmyndatöku:
Mynd

Lítur vel út og verður eflaust gaman að sjá hvernig tekst til:
Mynd

Foringinn að dúka miðsvæðið á væng á Breiðskrykking:
Mynd

Undirritaður lét hendur standa aðeins niður úr skálmum, stélkambur á Fly-Baby klár fyrir lamir:
Mynd

Tutor Orkubústjórans orðinn flugklár:
Mynd

"Der führer" kominn í samlímingar á Breiðskrokk, allt að smella saman:
Mynd

Alltaf fjör og gaman að geta sest niður með fjelögunum og dútlað við flugflotann, svona "félagsheimili" eins og við höfum ættu allir klúbbar að hafa ;)
Hrannar Gestsson, Patreksfirði

The knack of flying is learning how to throw yourself at the ground and miss.
Douglas Adams
Passamynd
Gaui
Póstar: 3639
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Smíðað í Módelsmiðjunni

Póstur eftir Gaui »

[quote=Spitfire]Bixler græjaður í flugmyndatöku:
https://frettavefur.net/Forum/uploadpic ... 1593_0.jpg[/quote]

Er þetta gamal hjúkkuklossi sem búið er að mála gulan?

:cool:
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
Patróni
Póstar: 327
Skráður: 21. Jan. 2009 23:32:18

Re: Smíðað í Módelsmiðjunni

Póstur eftir Patróni »

[quote=Gaui][quote=Spitfire]Bixler græjaður í flugmyndatöku:
https://frettavefur.net/Forum/uploadpic ... 1593_0.jpg[/quote]

Er þetta gamal hjúkkuklossi sem búið er að mála gulan?

:cool:[/quote]
hehehe ég gat ekki annað enn hlegið upphátt þegar ég sá þessa spurningu og samlíkingu,sá bara fyrir mér "Rússnenska trukkalessuOlgu"með sitthvoran Bixlerinn á fótunum í olbogasíðum gúmmívettlingum á leið í Ristilskoðun á einhverju rússa manngreyi.Nei enn þó Gaui held að þetta sé einhver sort að "nauðgarateipi" svokölluð að mig minnir til þess að gera nebbuna sterkari eftir nokkur tjón.
Gísli Einar Sverrisson.MSV Patreksfirði
Hef ekki enn séð endirinn á þessari flugdellu.
Passamynd
Spitfire
Póstar: 412
Skráður: 6. Ágú. 2006 12:16:01

Re: Smíðað í Módelsmiðjunni

Póstur eftir Spitfire »

Vér félagar í hinu villta Westri höfum verið lítt virkir á okkar ágæta spjalli undanfarið, en mikið hefur verið um að ske og margt skemmtilegt framundan. Rétt til að sýna að við erum vel á lífi, eru hér nokkrar myndir úr smiðjunni.

Kristján ritari mætti eftir langa fjarveru með nýtt flygildi:
Mynd

Eitthvað þarf að breyta merkingunum á flygildinu, því það heldur greinilega að það eigi heima í módelfélagi staðsettu sunnan Breiðafjarðar :P
Mynd

Eftir snöggsoðna samsetningu var farið að huga að nýjum verkefnum og hugsað stórt:
Mynd

Gísli "der führer" tók í notkun nýjasta verkfærið í eigu smiðjunnar, keypta frá hinum mikla og íðilfagra farandsölumanni og hans spúsu er heimsækja okkur reglulega í fjörðinn fagra:
Mynd

Og viti menn, græjan svínvirkar :cool:
Mynd

Undirritaður fór á smá lóðarí; grilluð straumstýring í Dynamic - S fékk að fjúka í viðeigandi ílát, arftakinn mætti hins vegar tengjalaus á svæðið, en ekki mikið mál að græja því:
Mynd

Og þessi elska er klár í slaginn :cool: Vonandi viðrar vel á morgun, enda hugur í félagsmönnum :)
Mynd
Hrannar Gestsson, Patreksfirði

The knack of flying is learning how to throw yourself at the ground and miss.
Douglas Adams
Passamynd
Spitfire
Póstar: 412
Skráður: 6. Ágú. 2006 12:16:01

Re: Smíðað í Módelsmiðjunni

Póstur eftir Spitfire »

Smá föstudagsföndur, startborðið endurbyggt og bætt:

Mynd

Foringinn á hvolfi við að skrúfa, varð að fara í réttar stellingar til að sjá hvað gengi á:

Mynd

Klárt fyrir sumarið, ekki veit ég af hverju ritarinn og bátasmiðurinn settu upp skelfingarsvip við að taka út verkið :o

Mynd

Þar til næst.....
Hrannar Gestsson, Patreksfirði

The knack of flying is learning how to throw yourself at the ground and miss.
Douglas Adams
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11427
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Smíðað í Módelsmiðjunni

Póstur eftir Sverrir »

Glæsilegt, ljómandi fallegt startborð! :)
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Spitfire
Póstar: 412
Skráður: 6. Ágú. 2006 12:16:01

Re: Smíðað í Módelsmiðjunni

Póstur eftir Spitfire »

Skutluðum samsetningarborðinu og vindpokanum upp á Wembley í kveld, því miður gustaði fullhressilega fyrir flug :(

Mynd
Hrannar Gestsson, Patreksfirði

The knack of flying is learning how to throw yourself at the ground and miss.
Douglas Adams
Passamynd
Patróni
Póstar: 327
Skráður: 21. Jan. 2009 23:32:18

Re: Smíðað í Módelsmiðjunni

Póstur eftir Patróni »

Ekki nema 22 hnútar í meðalvindi
Gísli Einar Sverrisson.MSV Patreksfirði
Hef ekki enn séð endirinn á þessari flugdellu.
Passamynd
Ágúst Borgþórsson
Póstar: 904
Skráður: 3. Jún. 2007 10:52:48

Re: Smíðað í Módelsmiðjunni

Póstur eftir Ágúst Borgþórsson »

Þið hafið notað allt of mikið stívelsi á pokann :)
Kv.
Gústi
Passamynd
Spitfire
Póstar: 412
Skráður: 6. Ágú. 2006 12:16:01

Re: Smíðað í Módelsmiðjunni

Póstur eftir Spitfire »

Börnin góð, vér Westfirðingar tilkynnum að við erum enn á lífi, blóm og kransar afþakkaðir fyrirfram. Smíðavertíðin hófst formlega þann 3. okt og í gær á smíðakveldi nr. 2 var mikið líf og fjör.

Margir hafa spurt hvernig gengur með Sopwith Pup, og hér í okkar fyrsta fréttaskoti í myndbandsformi má sjá hver staðan er :cool:



Mikill áfangi og stórri byrði af mér létt, nú eru bara smá fínstillingar framundan áður en öldungurinn fer í loftið :)
Hrannar Gestsson, Patreksfirði

The knack of flying is learning how to throw yourself at the ground and miss.
Douglas Adams
Svara