Plötuskil á Birddog

Sýnið hvað þið eruð að smíða eða setja saman
Svara
Passamynd
Gaui
Póstar: 3631
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Plötuskil á Birddog

Póstur eftir Gaui »

Mummi er að föndra við Cessna Birddog og það sem hann er að gera núna er að setja plötuskil á módelið. Flugvélin er klædd með áli, sem er sett á í plötum sem skarast, þannig að hann er búinn að finna aðferð til að búa til þessi plötuskil.

Það fyrsta sem hann gerir er að skoða vandlega allar myndir sem hann finnur af frummyndinni, TF-TOG.

Mynd

Það sem hann sér á myndunum ber hann saman við þríhliðateikningu af flugvélinni og ákveður þar hvernig plötuskilin eiga að snúa.

Mynd

Hann mælir allt vandlega og reiknar út hvar línurnar eiga að koma.

Mynd

Þá getur hann merkt hvar línurnar eiga að vera

Mynd

og síðan strikað eftir reglustiku (eða í þessu tilfelli mjúkri plastræmu)

Mynd

Hér eru komin strik fyrir öll plötuskilin ofan á vængnum.

Mynd

Nú sest hann niður og ákveður í hvaða röð skilin eiga að koma. Þetta getur skipt máli upp á að réttu plöturnar virðist liggja ofan á en aðrar undir.

Mynd

Til að gera plötuskilin eru tvær ræmur af límbandi (þetta er plastlímband sem notað er þegar bílar eru málaðir) límdar niður réttu megin við strikið. Það eru settar tvær ræmur til að fá nægilega hæð á plötuskilin.

Mynd

Og þá er strokið þunnu lagi af fylliefni á vængskinnið og spaðinn látinn renna eftir límbandinu.

Mynd

Þegar fyrri umferðin er þurr, þá er annað lag af fylliefni sett á.

Mynd

Eftir margar tilraunir erum við búnir að komast að því að þetta er miklu fljótlegra svona heldur en að setja eitt þykkt lag af fylliefni. Þunnu lögin þorna á nokkrum mínútum, en þykkt lag getur tekið marga klukkutíma að harðna í gegn.

Þegar fyllirinn er harður, þá má pússa hann niður að vængskinninu og límbandinu með blaut-pappír. Athugið að Mummi er með vatn í úðabrúsa til að úða þar sem hann ætlar að pússa. Þetta er miklu þrifalegra en að vera með vatn í fötu og sletta drullugu vatninu út um allt.

Mynd

Fylliefnið er pússað niður þar til öll brúnin á límbandinu er komin í ljós.

Mynd

Þá má rífa límbandið af.

Mynd

Ef fylliefni liggur yfir brúnina á límbandinu, þá er hætta á að það brotni upp þegar bandið er tekið.

Nú má pússa plötuskilin létt til að taka skörpustu brúnina burt. Fylliefnið er þó nokkuð hart, svo það er lítil hætta á að pússa of mikið ef maður einbeitir sér að verkinu.

Mynd

Og þá eru fyrstu plötuskilin komin:

Mynd

Smá fylligrunnur til að sjá hvernig þetta lítur út:

Mynd

og þá er bara að gera næstu línu.

Mynd

Þegar allar línur eru komnar á vænginn, þá reynum við að taka mynd sem sýnir þær í réttu ljósi og setjum hérna inn.

:cool:
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
jons
Póstar: 185
Skráður: 1. Sep. 2008 18:08:41

Re: Plötuskil á Birddog

Póstur eftir jons »

Neðsta myndin í röðinni er pínu villandi. Þar er helst að sjá að hægt sé að sjá plötuskilin sjálf og aftari brúnina á fylliefninu (sem á auðvitað ekki að sjást). En þetta er e-r effect í blautum fylligrunninum og flassinu - flata brúnin á fylliefninu sést ekki neitt svona þegar maður er á staðnum.

Bara svona ef einhver var að spá.
Jón Stefánsson
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11419
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Plötuskil á Birddog

Póstur eftir Sverrir »

Glæsilegt, það má líka sjá eitthvað smotterí á Þrumufleygsþræðinum. Mynd

Mynd
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
jons
Póstar: 185
Skráður: 1. Sep. 2008 18:08:41

Re: Plötuskil á Birddog

Póstur eftir jons »

Þú veist hvað sagt er um góðu vísurnar... :)
Jón Stefánsson
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11419
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Plötuskil á Birddog

Póstur eftir Sverrir »

Engin spurning, líka ítarlegri lýsing og myndir! :)
Icelandic Volcano Yeti
Svara