Fokker D-XXI smíði

Sýnið hvað þið eruð að smíða eða setja saman
Passamynd
jons
Póstar: 185
Skráður: 1. Sep. 2008 18:08:41

Re: Fokker D-XXI smíði

Póstur eftir jons »

Byrjaði á hæðarstýrunum í morgun.

Mynd


Þegar ég ætlaði að líma endann á stýrin komst ég að því að það voru fjögur endapör.

Mynd


Fyrst hélt ég að ég þyrfti að líma endana saman og þannig myndi hægri/vinstri passa. En þessir bitar eru 12mm á þykkt en teikningarnar tala um að líma saman tvo 6mm balsaenda. Þegar ég mátaði þessa enda við teikningarnar er augljóst að þeir passa hvort eð er ekki.

Mynd


Við Gaui klóruðum okkur aðeins í skallanum, en svo datt okkur í hug að þetta gæti kannski passað ofan á rudder og stélkambinn.

Mynd


En eins og sést stenst það ekki heldur. Það hefði heldur ekki þurft fjögur pör ef þetta væri raunin.

Svo ég reikna með að þetta sé bara villa í kittinu og mun því skera þetta út næst þegar ég kemst í skúrinn.
Jón Stefánsson
Passamynd
jons
Póstar: 185
Skráður: 1. Sep. 2008 18:08:41

Re: Fokker D-XXI smíði

Póstur eftir jons »

Ég bjó til standplötu fyrir mótorinn sem ég get svo, þegar tíminn kemur, fest á eldvegginn. Líklegast þarf ég einhverjar stultur undir þetta, en tíminn leiðir það í ljós.

Ég byrjaði á að fá 6mm álplötu frá Balla slippara - takk Balli!

Mynd


Ég byrjaði á stórri miðjuholu til að koma afturendanum á mótorinum fyrir.

Mynd


Boraði síðan 4 holur fyrir mótorfestinguna og aðrar 4 til að geta fest plötuna við eldvegginn.

Mynd


Sagaði í rétta stærð.

Mynd


Pússaði verstu kantana af og endaði með ANG (Andskotans Nógu Gott) bakplötu sem leyfir mér að festa mótorinn við vélina án þess að þurfa að brasa of mikið.

Mynd

Mynd
Jón Stefánsson
Passamynd
jons
Póstar: 185
Skráður: 1. Sep. 2008 18:08:41

Re: Fokker D-XXI smíði

Póstur eftir jons »

Eitt skalamódelið fékk að fljóta með í skúrinn.

Mynd


Ég hófst handa við að byggja upp hæðarstýrin.

Mynd

Mynd

Mynd


Ég bætti við litlum balsabita á hæðarstýrin og stélvænginn fyrir (gervi) balanshornið.

Mynd


Á síðustu mínútu ákvað ég að gera göt í stélvængsrifin í aumri tilraun til að létta stélið um gramm eða svo. Það er auðvitað ekki mikið, en það geta verið örfá grömm framar á vélinni, grömm sem ég get þá notað í eitthvað skemmtilegra.

Mynd


Því næst klæddi ég svo hina hlið stélvængsins. Ég byrjaði með því að líma balsaplötur saman og pússa það slétt. Sekúndulím var notað til að festa plötuna að aftan og trélím síðan sett á restina af plötunni til að festa hana á.

Mynd

Mynd


Klemmdi síðan plötuna á meðan límið þornar. Ég ætla rétt að vona að Gaui sé ekki á leiðinni að hengja út þvottinn!

Mynd


Þvínæst var hliðarstýrið tæklað. Ég dró það upp sem fyrr og byrjaði á samsetningu.

Mynd

Mynd


Freyju verður yfirleitt frekar heitt í hamsi þegar ég er að yfirgefa pleisið og reynir iðulega að príla upp í fangið á mér þegar ég er að kveðja hana - með misjöfnum árangri. Í þetta skiptið tókst það, og fékk ég blautan og góðan kveðjukoss fyrir vikið :)

Mynd
Jón Stefánsson
Passamynd
jons
Póstar: 185
Skráður: 1. Sep. 2008 18:08:41

Re: Fokker D-XXI smíði

Póstur eftir jons »

Smá rudder updeit. Ég festi plaströr sem mun þjóna sem löm á ruddernum.

Mynd


Greinilega gríðarlega ánægður með afrekið! :)

Mynd


Setti að lokum smá balsakubba til að halda við rörið, afturbrúnina og tvö rif sem ég á eftir að setja.

Mynd


Á morgun fer ég svo í að setja stífur inn í rudderinn, hann er ansi svag í dag.

Annars vorum við bara á lipoveiðum eins og fram hefur komið annars staðar.
Jón Stefánsson
Passamynd
jons
Póstar: 185
Skráður: 1. Sep. 2008 18:08:41

Re: Fokker D-XXI smíði

Póstur eftir jons »

Ég setti bambusstífur og stuðning í rudderinn, sem varð við það afar traustur. Ég reikna með að hann muni ekki verpast til þegar ég klæði hann.

Eins og sést er þyngdaraukningin lítil og rudderinn (ennþá) léttur og fínn.

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

- Mummi
Jón Stefánsson
Passamynd
jons
Póstar: 185
Skráður: 1. Sep. 2008 18:08:41

Re: Fokker D-XXI smíði

Póstur eftir jons »

Ég hef haldið áfram í rólegheitunum með afturenda vélarinnar.

Ég silfursauð M2 bolta á vír. Þetta mun ég svo skrúfa upp í gula plaströrið í rudderinum til að festa hann á sínum stað. Það ætti að duga og vel það.

Mynd


Ég var að hugsa um að skipta út krossviðs-controlhorninu fyrir G10 horn, en ákvað svo að vera ekkert að flækja þetta.

Mynd


Eftir að hafa límt frambrúnina á afturvænginn bar ég léttsparsl við samskeytin til að gera mér pússið aðeins auðveldara.

Mynd


Ég þóttist nokkuð viss um að toppurinn á rudderinum á hollensku útgáfunni hefði verið eins og hér fyrir neðan.

Mynd


Eftir að líma þetta á fann ég að sjálfsögðu betri myndir sem sýndu öðruvísi lögun. Sem betur fer virðist þetta nú vera eins nema ekki ná fram yfir frambrúnina, svo ég gat einfaldlega stytt toppinn.

Mynd


Hér má sjá árangurinn hingað til.

Mynd
Jón Stefánsson
Passamynd
jons
Póstar: 185
Skráður: 1. Sep. 2008 18:08:41

Re: Fokker D-XXI smíði

Póstur eftir jons »

Góðan daginn og gleðilega hátíð. Eftir allnokkuð hlé er ég nú að hugsa um að fara að reyna að vera ögn duglegri við póstana. Ég er svo sem ekki búinn að vera aðgerðalaus, en ekki ofvirkur heldur. Hér er smá myndaloggur um árangurinn síðan síðast.

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Gleðilegt nýtt ár! Megi 2016 færa okkur gott lift og mjúkar lendingar. Skál!

Mynd

Mummi
Jón Stefánsson
Passamynd
jons
Póstar: 185
Skráður: 1. Sep. 2008 18:08:41

Re: Fokker D-XXI smíði

Póstur eftir jons »

Næsta skref var að festa stélkambinn á stélvænginn. Til þess notaði ég CA lím alls staðar þar sem fletirnir tveir snertust, en í bilið undir kambinn setti ég epoxy/microballoons blöndu sem batt fletina vel saman og bjó til stöðugan flöt fyrir kambinn svo hann getur hvergi hreyfst. Næsta skref er svo að halda áfram að planka aftari hlutann á skrokknum.

Mynd

Mynd

Mynd

Mummi
Jón Stefánsson
Passamynd
jons
Póstar: 185
Skráður: 1. Sep. 2008 18:08:41

Re: Fokker D-XXI smíði

Póstur eftir jons »

Í dag hóf ég plönkun á aftari hluta skrokksins. Þar sem það er frekar krappur bogi þar ákvað ég að skera plankana mjóa, um 4mm, og hafa þá trapísulaga frekar en ferhyrningslaga. Það gerði ég með því að líma smá balsabút undir balsaskerann til að halla blaðinu. Hugmyndin þá verandi sú að mögulega auka límflöt milli planka og losna við bil milli plankanna. Á myndinni hér fyrir neðan reyni ég að útskýra hvað ég var að hugsa (hún er vitaskuld nokkuð ýkt).

Mynd

Mynd

Mynd

Mynd

Þegar ég byrjaði að planka um daginn notaði ég venjulegt CA lím, en gufurnar af því fóru ægilega í taugarnar á mér. Ég pantaði mér því s.k. "Odorless CA" til prufu. Í stuttu máli sagt er þetta brilljant. Eftir þó nokkrar límíngar í morgun fann ég ekki fyrir því. Það má svo auðvitað vera að gufurnar séu jafn hættulegar og af venjulegu CA lími þó maður finni ekki fyrir þeim, en manni líður amk ekki illa á meðan.

Ég prófaði líka að kaupa ódýrar pípettur til að sjúga þunnt CA lím upp í og nota til límínga. Það kemur býsna vel út - það er auðvelt að koma þessu að í þrengslum og svo er þetta svo létt að það er miklu handhægara en límdolla. Fínt að hafa tvær í takinu - eina með lími og eina með kicker.

Mynd

Þegar ég sest niður til að fá mér kaffisopa og kex bregst ekki að aðdáendaskarinn lætur sjá sig. Þið getið rétt ímyndað ykkur hvað þær vilja :)

Mynd

Mummi
Jón Stefánsson
Passamynd
jons
Póstar: 185
Skráður: 1. Sep. 2008 18:08:41

Re: Fokker D-XXI smíði

Póstur eftir jons »

Og áfram er haldið.

Eftir að ég lauk fyrsta plönkunaráfanganum tók ég grófan sandpappír (80 eða 100) og grófpússaði niður stærstu hryggina. Eins og sést á myndinni hér fyrir neðan munar heilmikið um þetta fyrsta skref; þarna er ég búinn að pússa fremri hlutann en ekki þann aftari.

Mynd

Eftir pússun tók ég góða lúkufylli eða tvær af Red Devil sparsli og smurði vel og vendilega yfir alla plönkun.

Mynd

Mér finnst þetta efni ekkert æði þegar þarf að setja það á með spaða, en það er ljómandi þegar maður notar hendurnar.

Mynd

Í næstu ferð hafði þetta fengið að harðna í rólegheitunum, svo komið var að því að pússa næstum því allt sparslið í burtu aftur. Það eina sem skilið er eftir er það sem raunverulega sléttar úr skrokknum. Þetta er afskaplega létt efni sem dregur epoxy í sig og verður grjóthart svona þegar ég fer að glassa skrokkinn.

Mynd

Þvínæst bjó ég til vöggu fyrir skrokkinn úr afgangsfroðuplasti og -borðum og get því hafið vinnuna við neðri helminginn!

Mynd

Mummi
Jón Stefánsson
Svara