Í dag þurfti ég að vera heima með veikan son. Hvað átti maður að gera? Setja gólflista? Smíða handrið? Byrja á flugmódeli? Valið var auðvelt!
Fyrir valinu varð pínulítill deltavængur fyrir .25 mótor - enda er ég ekki með smíðaaðstöðu heima. Stofuborðið varð því fyrir valinu og smíðatími reiknaður þannig að ég yrði búinn að ryksuga og setja upp englabrosið þegar konan kæmi heim úr vinnunni. Teikningin kom með RCM&E í júlí 1999.
Á meðan Júníorinn óverdósaði á Nemó og félögum byrjaði ég um níuleytið.
Um hálfellefu voru stélin komin á...
Og um hádegið bara eftir að búa til einfaldan skrokk sem smýgur inn í glennuna fremst á vængnum.
Nóg í dag enda á ég ekki balsaplötur í klæðninguna hérna heima. Ætli það taki ekki nokkra tíma til viðbótar að gera hana klára fyrir tækin. Það verður gaman að sjá hvort þetta fyrirbrigði flýgur...
Kveðjur,
Árni Hrólfur
Akureyri
Hvað á að gera þegar Júníor er veikur?
Re: Hvað á að gera þegar Júníor er veikur?
Stórglæsilegt... nú vantar mig bara júníor til að geta leikið þetta eftir
Icelandic Volcano Yeti
Re: Hvað á að gera þegar Júníor er veikur?
Ja, Júníorinn flýtir nú ekki alltaf fyrir! Það má geta þess að töluverður tími af smíðatíma morgunsins fór í að berjast við stíflaða límtúbu. Annars segir í greininni sem fylgir teikningunni að þetta sé vél sem maður á að geta gert klára á nokkrum kvöldstundum. Ég held að það sé ekki fjarri lagi.
Annars heitir vélin Mini Whizz og lítur t.d. svona út:
Annars heitir vélin Mini Whizz og lítur t.d. svona út:
Re: Hvað á að gera þegar Júníor er veikur?
Jú, hún nuddast löturhægt áfram eins og annað sem ég smíða :rolleyes: Raunar er ekki mikið eftir - hún flýgur vonandi á flugkomunni okkar
Re: Hvað á að gera þegar Júníor er veikur?
Glæsilegt, verður gaman að sjá hana
Icelandic Volcano Yeti