Síða 2 af 2

Re: Cessna 152 í viðgerð á Grísará

Póstað: 12. Nóv. 2017 16:01:03
eftir Gaui
Vélarhlífin var ekki falleg þegar eg fékk hana:

Mynd

Ég byrjaði á því að klippa niður nokkur pappaspjöld og líma inn í hlífina. Við þetta stífnaði hún upp og varð viðráðanleg.

Mynd

Næsta skref er að fylla allt upp með P-38 og tálga og pússa það niður. Hér er fyrsta tilraun. Því miður kláraðist P-38-ið mitt og ég þarf að ná mér í meira til að halda áfram með þetta.

Mynd

:cool:

Re: Cessna 152 í viðgerð á Grísará

Póstað: 12. Nóv. 2017 19:33:35
eftir Flugvelapabbi
Glæsilegt hja þer.
kv
einar pall

Re: Cessna 152 í viðgerð á Grísará

Póstað: 12. Nóv. 2017 21:41:46
eftir gudjonh
Ja hérna!! Er þetta viðgerð eða nýsmíði??
Held reyndar að þetta sé skemmtilegt. Mikiða af mínu "dóti" er eldgamalt og marg smíðað.


Guðjón

Re: Cessna 152 í viðgerð á Grísará

Póstað: 15. Nóv. 2017 20:50:46
eftir Gaui
Hér er búið að setja helling af P-38 á vélarhlífina, tálga það til og pússa með grófum pappír:

Mynd

Fyrsta umferð af grunni og vélarhlífin er farin að líkast einhverju sem hægt er að nota:

Mynd

:cool:

Re: Cessna 152 í viðgerð á Grísará

Póstað: 17. Nóv. 2017 21:02:56
eftir Messarinn
Þetta er nýja trentið, að gera við gamlar krassaðar flugvélar sem er bara nokkuð gaman Gauji minn :)

Re: Cessna 152 í viðgerð á Grísará

Póstað: 18. Nóv. 2017 15:25:21
eftir Gaui
Nú vantar mig eiginlega bara filmu til að klæða hana. Þarf að hafa samband við eigandann.

:cool:

Re: Cessna 152 í viðgerð á Grísará

Póstað: 20. Nóv. 2017 15:07:18
eftir Gaui
Það er venja hér á G að Árni setur nýja vélarhlíf á höfuðið. Það er komið að því hér, nema hvað hún er ósköp lítil:

Mynd

:cool:

Re: Cessna 152 í viðgerð á Grísará

Póstað: 26. Nóv. 2017 22:54:08
eftir Gaui
Þetta er um það bil að verða búið. Var að pússa og grunna vélarhlífina. Það eina sem vantar nú er að líma stélið á.

Mynd

:cool:

Re: Cessna 152 í viðgerð á Grísará

Póstað: 6. Des. 2017 20:14:05
eftir Gaui
Hér er stélflöturinn kominn á og búið að snikka til stykkin sem sitja sitt hvoru megin við stélkambinn:

Mynd

Og hér er búið að líma stélkambinn á og fyllurnar í kringum hann. Nú er bara að bíða eftir að þetta þorni svo hryggurinn geti farið á sinn stað.

Mynd

:cool:

Re: Cessna 152 í viðgerð á Grísará

Póstað: 10. Des. 2017 18:25:05
eftir Gaui
Þá er tréverkinu lokið:

Mynd

:cool: