Síða 1 af 2

Re: T1 jet frá T-one models

Póstað: 17. Okt. 2018 22:10:55
eftir lulli
Eftir frábæra reynslu af Tomahawk Futura varð valið af arftaka hennar á þá lund, að fara ekki of langt frá þeim cursor.
Það voru nokkur atriði sem hjálpuðu til við valið, en stærsta gulrótin var 100% gott re-view þeirra sem tóku þetta val.
Við fyrstu sýn , þá virðist þetta vera sterkbyggt og mjög vandað hjá þeim.
Mynd

Helstu mál og kvarðar , semsagt lítillega stærri en gamla góða Futuran, ekki síst vængfletir,, bæði stél og aðalvængir.
Mynd
Mynd

BARA EINN KASSI
Hvernig þeim tókst að koma öllu fyrir og afhenda það óskemmt er nátturlega bara snilld.
Mynd Mynd

Re: T1 jet frá T-one models

Póstað: 17. Okt. 2018 22:29:50
eftir Sverrir
Glæsileg, verður gaman að sjá hana út á velli! :cool:

Re: T1 jet frá T-one models

Póstað: 29. Nóv. 2018 22:51:40
eftir lulli
[quote=Sverrir]Glæsileg, verður gaman að sjá hana út á velli! :cool:[/quote]
Takk fyrir.
Það er greinilega mikil gróska þessa dagana hjá þeim í T One genginu, maður fylgist að sjálfsögðu grant með þeim á fésbókinni ,bara í síðustu viku voru 2 nýjar prótotýpur teknar í prufuflug ,og þar með bættist við annars gott úrval af þotunum þeirra.

Hjá mér eru kannski ekki alveg eins mikil læti, enda ekki ástæða til,þar sem þotan kemur ótrúlega mikið tilbúin frá þeim.

Gengið frá hitahlíf inní boddíi áður en trhrust hólkurinn festist á sinn stað.
Mynd Mynd Mynd

Re: T1 jet frá T-one models

Póstað: 30. Nóv. 2018 00:07:32
eftir lulli
....inn með thrust túbuna (Ísl. knýleiðihólkinn)
bolta svo afturhlutann fastann og þá má fara að huga að skemmtilega stuffinu, henni bínu hún bíður tilbúin jeiiii !
Mynd Mynd

Re: T1 jet frá T-one models

Póstað: 1. Des. 2018 11:08:19
eftir Ágúst Borgþórsson
Hún er svakalega flott Lúlli, til hamingju með hana.

Re: T1 jet frá T-one models

Póstað: 1. Des. 2018 13:40:33
eftir Steinþór
Rosalega flott

Re: T1 jet frá T-one models

Póstað: 3. Des. 2018 23:07:11
eftir lulli
Steini - Gústi
Þið eruð sjálfir flottir!!! :cool:

Staðan : Túrbína settist fallega á sinn stað.

Mynd Mynd
Þetta er það eina sem sést af annars spegil gljáandi thrust pípunni
Mynd
Hér á svo heldur betur eftir að hitna í kolunum.
Mynd

Tankurinn er flottur ,tvískiptur og kemur svo nánast að túrbínunni
afterburner (efri) /jet-fuel (neðri)

Mynd

Lúlli

Re: T1 jet frá T-one models

Póstað: 5. Des. 2018 20:19:15
eftir Árni H
Þetta líst mér vel á - glæsileg vél hjá þér!

Re: T1 jet frá T-one models

Póstað: 19. Des. 2018 18:52:37
eftir lulli
Takk Árni.
Vonandi næ ég einhverntíman að kynda Melana með þessarri.

Það þótti mér vissara að ganga frá nefhjóli áður en síðasti búturinn yrði festur á. Þær áhyggjur hefu svo sannarlega verið óþarfar því aðgengi að öllu allstaðar í þessari vél er meiri háttar gott.
Svo Þessi fíni lendingaljóskastari.
Stýrið tengt og still með dual link og Digital metal gear servo.
Mynd
Mynd Mynd Mynd Mynd

Re: T1 jet frá T-one models

Póstað: 19. Jan. 2019 15:14:06
eftir lulli
þá er nú kominn tími til að stíga svolítið í vænginn ,þó ekki bókstaflega. En fyrst loft og hjólabúnaður svo linkar og flaps.
Og að sjálfsögðu þá smellur allt átakalaust saman.
.....eins og ég sagði frábærlega unnið hjá þeim T-one verksmiðjunniMynd
Kannski eina álitaefnið sést á næstu 2 myndum
Mynd Mynd
Og svo þessar fínu lúgur til að loka fallega
Mynd