Síða 1 af 2

Re: Hurricane frá YT

Póstað: 8. Júl. 2007 09:47:16
eftir Sverrir
Það hefur tekið smá tíma en loksins er hún komin í gang. Geri ekki ráð fyrir miklum smáatriðum, né löngum póstum ;)
Stélið og hreyfifletirnir komnir á, vængurinn samlímdur og stellið komið í.

Mynd

Mynd

Re: Hurricane frá YT

Póstað: 8. Júl. 2007 19:04:58
eftir Sverrir
Af einhverjum ástæðum passaði bara annar vængboltinn í gaddarærnar. :rolleyes:
Þetta er kannski til að auðvelda manni að muna hvor boltinn á að vera hvar ;)
Mynd

Allt að koma.
Mynd

Re: Hurricane frá YT

Póstað: 11. Okt. 2007 20:09:00
eftir Sverrir
Jæja þá er þetta að skríða saman. :)

Litið í heimsókn til Gumma og smá þynging mixuð til að koma þyngdarpunktinum á réttan stað.
Mynd

Blýið á eldveggnum var svo fjarlægt eftir að þessi litli sæti stálbútur var komin á sinn stað.

Re: Hurricane frá YT

Póstað: 12. Okt. 2007 17:06:49
eftir Árni H
Vá! Engin smáþynging þarna á ferðinni...

Re: Hurricane frá YT

Póstað: 12. Okt. 2007 17:57:55
eftir Sverrir
Enda svitnuðu dempararnir þegar þeir sáu Gumma mæta með klumpinn ;)

Re: Hurricane frá YT

Póstað: 13. Okt. 2007 18:53:11
eftir Árni H
[quote=Sverrir]Enda svitnuðu dempararnir þegar þeir sáu Gumma mæta með klumpinn ;)[/quote]
Mér sýnist Gummi líka svitna svolítið yfir þessum hlunk :) Þetta er hins vegar flott lausn á þyngingunni.

Re: Hurricane frá YT

Póstað: 15. Okt. 2007 20:32:50
eftir Messarinn
Já það bogaði af mér svitin enda pínu hræddur um að mótor búkkin beri þetta ekki til lengdar.
Maður verður bara að krossleggja fingurna

Re: Hurricane frá YT

Póstað: 21. Sep. 2017 15:19:23
eftir Messarinn
Sælir félagar

Eftir nose over á Tungubökkum 2008 þá hefur þessi Hurricane verið upp í hillu hjá mér þangað til um daginn að ég tók hann niður og ákvað að gera hann upp
Mynd


Byrjaði á að setja hjóla hlífarnar á stellið og geta þær nú snúist á leggnum
Mynd


Útaf því hvað hjólastellið fer mikið aftur upp í vænginn þá þarf að vera snúningur á hjólastells hlífunum
Þarna á myndinni er 3mm carbonfiber stöng sem ég límdi í ál enda sem ég smíðaði. Af því að robart kúlu liðs festinginn er bara í skinninu þá verð ég að líma hana í efra og neðra skinnið
Mynd
Mynd



Nú geta hjóla lokurnar verið réttar bæði uppi og niðri. Þetta er svona á Full zise Hurricane.
Mynd



Framhald næst : Mótor skipti
GH Flugwerk

Re: Hurricane frá YT

Póstað: 15. Nóv. 2017 07:51:46
eftir Messarinn
Daginn allir.
Mótorinn sem var í Hurricane var frekar afl lítill svo ég keypti nýjan mótor sem heitir NGH 25cc frá hobbyking og er bensín mótor.(Gamli mótorinn var Saito100 sem er um 17cc glowfuel)
Mynd

Motorinn passar bara nokkuð vel á Hurricane
Mynd

Meira seinna
GH Flugwerk

Re: Hurricane frá YT

Póstað: 15. Nóv. 2017 10:29:48
eftir Gaui
Góður!
:cool: