Í ljósi þess að aðalþráðurinn þessa dagana virðist vera um ekki neitt, þá ákvað ég að setja inn tvær myndir hérna af Das Ugly Stik smíðinni (og vissulega má færa fyrir því rök að hér sé einmitt "ekkert" að gerast...).
Á fyrstu myndinni sést hvernig búið er að pússa skrokkinn til þannig að vængurinn smellpassar ofan á og er tilbúinn til festinga (#):
Hérna er ég svo byrjaður á festingunum. Hérna er ég að setja krossviðstungu framan á vænginn; hún mun renna inn í skrokkinn og halda vængnum að framan. Að aftan verður sett krossviðsplata og skrúfað gegnum hana ofan í skrokkinn til að festa vænginn tryggilega (#):
Enn eitt smíðakvöldið búið. Nú kom Diddi og fékk smá aðstoð við að setja hjólastell undir litla og flotta flugvél sem kallast Aviator. Hún er fyrir 40 mótora og er nett og falleg.
Árni hélt áfram með Das Ugly Stick. Hér er hann að byrja á vængnum:
Og Mummi dúllaði við sinn Stikkara allt kvöldið, kláraði stýrifletina og er byrjaður að festa vænginn á:
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Í kvöld byrjaði ég að klæða Stikkinn (með agnar-ponsu pínku hjálp frá Gauja). Eins og sést valdi ég að hafa hana skær-appelsínugula... og eins og sést er ég helvíti ánægður með litavalið (#):