Smíðað á Grísará

Sýnið hvað þið eruð að smíða eða setja saman
Svara
Passamynd
Guðjón
Póstar: 841
Skráður: 5. Jún. 2008 18:18:01

Re: Smíðað á Grísará

Póstur eftir Guðjón »

já liiturinn kemur skemmtilega-fallega út :D
Kv. Guðjón Bergmann, s: 6690069
---
"Ég vona að dag einn verði ég eitthvað meira en meðlimur" - Guðjón Bergmann, meðlimur
Passamynd
Gaui
Póstar: 3631
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Smíðað á Grísará

Póstur eftir Gaui »

Sunnudagur á Grísará:

Hér eru þrír Stikkar og einn Extra (eða eitthvað svoleiðis) standandi á framleiðslulínunni:

Mynd

Árni hélt áfram með sinn Stikkara og setti hinn vænginn saman:

Mynd

Mummi hélt áfram að klæða sinn. Hér er allt neðra borðið komið á:

Mynd

Efra borðið er sett saman úr þrem bútum, tveim órans og einum hvítum. Maður límir þá saman á glerplötu þegar ekkert er undir samskeytunum eins og á þessum Stikkurum:

Mynd

Síðan er samsetti búturinn settur á vænginn og festur niður:

Mynd

Svo er filman strekkt með hita og svartar línur settar á samskeytin:

Mynd

Ég hafði smá efasemdir um þennan órans lit, en þegar hvíti liturinn og svarta línan eru komin líka, þá er þetta bara flott hjá kallinum ;)
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
jons
Póstar: 185
Skráður: 1. Sep. 2008 18:08:41

Re: Smíðað á Grísará

Póstur eftir jons »

[quote=Gaui]Ég hafði smá efasemdir um þennan órans lit, en þegar hvíti liturinn og svarta línan eru komin líka, þá er þetta bara flott hjá kallinum ;)[/quote]
...enda kallinn annálaður smekkmaður ;)

kv Mummi.
Jón Stefánsson
Passamynd
Gaui
Póstar: 3631
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Smíðað á Grísará

Póstur eftir Gaui »

Enn einn sunnudagurinn á Grísará:

Mynd

Menn voru ekki í neitt sérlega góðum sköpum í morgun, svo ókunnugir hefðu janfvel fengið hlönd fyrir hjörtun, en eftir nokkur köff og klöpp á bökin var farið að vinnast sæmilega.

Árni er búinn að setja vænginn sinn saman og glottið að færast framar á andlitið.

Mynd

Stélið hans Mumma er að hvítna og ekki langt í hann fari að gluða óransinu á skrokkhiðarnar:

Mynd

Það er engin mynd af mér að smíða af því ég geri aldrei handtak þegar aðrir sjá til!
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
maggikri
Póstar: 5603
Skráður: 2. Júl. 2005 01:26:30

Re: Smíðað á Grísará

Póstur eftir maggikri »

Var thetta dagvaktin a Grisara.
kv
MK
Passamynd
Gaui
Póstar: 3631
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Smíðað á Grísará

Póstur eftir Gaui »

Morgunvaktin, Maggi. Hún er best.
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
maggikri
Póstar: 5603
Skráður: 2. Júl. 2005 01:26:30

Re: Smíðað á Grísará

Póstur eftir maggikri »

Sammala kv MK
Passamynd
Gaui
Póstar: 3631
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Smíðað á Grísará

Póstur eftir Gaui »

Fimmtudagur 20. nóvember 2008

Mummi og Árni komu til að smíða Stikkana sína -- Mummi er langt kominn með að klæða skrokkinn -- og Diddi mætti með litla Aviator aftur og límdi á hann stélið. Rúnar Patreksfirðingur Bollason kom og tók nokkrar strokur á Stick og Tommi kíkti inn og hélt öllum upp á blaðri: Sem sagt alveg frábært kvöld.

Mynd

Árni uppgötvaði að Diddi var með vélarhlífina á Aviator, svo hann bara varð að setja hana á höfuðið:

Mynd

Mig minnir að hann hafi mátað þessa káflíngu áður -- getur einhver fundið hana?

Og að lokum prófaði hann vélarhlífina á Extruna, sem hann er nýlega búinn að líma saman með límbandi:

Mynd

Fjörið ætlar engan endi að taka: MODELMEN GOING WILD !
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Passamynd
jons
Póstar: 185
Skráður: 1. Sep. 2008 18:08:41

Re: Smíðað á Grísará

Póstur eftir jons »

Í dag lauk grófklæðningu á Stikkinum (sem hefur, af skiljanlegum ástæðum, fengið nafnið "Nemó"). Hvergi sést lengur í balsa (nema í innviðunum að sjálfsögðu). Nú á bara eftir að strekkja á klæðningunni víðast hvar, og setja svartar rendur og svarta krossa á viðeigandi staði til að ljúka klæðningu. Eftir það eru bara svo sem þúsund handtök eftir og þá verður hún flughæf (#):

Mynd

kv Mummi.
Jón Stefánsson
Passamynd
Gaui
Póstar: 3631
Skráður: 28. Nóv. 2004 18:30:14
Staðsetning: Eyjafjörður

Re: Smíðað á Grísará

Póstur eftir Gaui »

Jæja, það er ekki mikið eftir í Stikkaranum hand Mumma. Hann mætti í skúrinn á gamlársdag og sagaði niður eitt stykki Volvo í hjólastell. Hér er hann að sverfa stellið til:

Mynd

Hér er Stikkarinn og stoltur eigandi, báðir standandi í lappirnar. Krossarnir eru flottir á skrokk og væng:

Mynd

Það verða engin venjuleg dekk undir þessum Stikkara. Hann veður með „Low Profile“ BLING felgur:

Mynd
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði
Svara