Reyndar voru frekar skrýtin skilaboð á vefnum hjá UPS þegar ég var að tjékka á pakkanum.
[quote=tracking page]SHIPMENT IS HELD DUE TO UNREALIST VALUE/WEIGHT RATIO, UPS WILL VERIFY VALUE WITH RECEIVER BEFORE CUSTOMS CLEARANCE[/quote]
Hvað ætli sé ásættanlegt verð per þyngdareiningu? :rolleyes:
En þar sem ég lét gera útflutningsskýrslu þá leystist þetta nú með einu símtali.
Mótorinn fór s.s. út 16.júní og daginn eftir var byrjað að saga spýtur. Mótorinn svo kom aftur 13.júlí og svo flaug vélin þá um kvöldið, ekki hægt að kvarta yfir því.
Mig langar svo að þakka Einari Páli kærlega fyrir aðstoðina og aðstöðuna, hefði ekki getað þetta á svona stuttum tíma annars.
Þakka þer sömuleiðis að leifa mer að breyta utlitinu og raðskast með litina þetta var aldeilis frabært að vinna þetta með þer og gaman var að sja hvað hun er flott i loftinu, nu er bara farið að gera uppköst að algjörlega nyrri þotu þetta var svo fjari skemmtilegt, gangi þer vel með velina eg er farinn að hlakka til að sja fleiri flug hja þer Sverrir.
Kv.
Einar
til hamingju með nýju þotuna lítur vel út. sá ekki einu sinni gömlu vélina en hún er öruglega ágætur eldiviður en vona að þessi fari ekki að leka þotu safanum annars geriru bara nýja virðist ekki vera mikið mál. en hlakka til að sjá hana í loftinu
Íðilflott hjá þér Sverrir. Til hamingju.
Að þú skulir vera að pukrast með þetta án þess að leyfa kkur að fylgjast með, fyrr en eftirá. En þú hefur væntanlega verið svo bissí að koma þessu saman...
"For every complex problem there is a solution that is simple, neat and wrong" H.L. Mencken
Já til hamingju með þetta strákar og takk fyrir síðast. Alltaf gaman að koma í heimsókn til þín Palli og fljúga á Tungubökkum.
Hlakka til að sjá Þotuna fljúga hjá þér Sverrir
Kveðja Gummi
Guðmundur Haraldsson Flugmódelfélag Akureyrar
A RAF engineering officers joke: Whats the difference between a fighter pilot and his aircraft? The plane stops whining when you shut down the engines.