Ég sá í einhverjum pósti að verið var að skora á mig að sýna hvað ég er að smíða (eða er það kannski einhver annar Gaui?) Hvað um það, mér datt íhuga sýna inn í smíða-aðstöðuna að Grísará núna:
Þetta er stórt módel og fer langt með að fylla tvöfaldan bílskúr.
gaui
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Hérna er smá meira: ég er að klára að sprauta og það verða ekki margar vikur í flug.
Það næsta sem gerist er að hjólastellið verður klárað og þegar ég fæ móttakarann. þá stilli ég inn alla stýrifleti. Ég set inn aðra mynd þegar ég set módelið saman úti í garði einhvern góðan veðurdag.
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Nú á ég bara eftir að setja „pull-pull“ vír í hæðarstýrin, setja vírkrossa á milli vængstífanna, stilla stangirnar á milli hallastýranna og fá Guðmund til að smíða hljóðkút. Þá verður hægt að fljúga þessum dreka sem fyllir upp í hálfan bílskúrinn hjá mér núna (og hann er tvöfaldur )
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.
Jæja, þá er allt tilbúið. Ég er búinn að ballansera, það þurfti rúmlega tvö kíló í nefið auk þess sem er þungt en gerir í leiðinni annað gagn (batterý, hljóðkútur)
Hérna er verið að ballansera Pupinn. Ég hengdi hann upp á vængnum og setti blý framan á hann þar til hann hallaði rétt. Ég ætla að reyna að fljúga þegar veður gefur.
Ég er svona það sem kallað er Trendsetter, það bara tekur enginn eftir því.