Viper Jet

Sýnið hvað þið eruð að smíða eða setja saman
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11572
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Viper Jet

Póstur eftir Sverrir »

Jæja, ætli það sé ekki best að birta einhverja punkta um samsetninguna. :)

Það borgar sig að skoða hlutina vel, hér sést hvar skinnið er ekki límt við sperruna, smá Hysol reddaði því.
Mynd

Servóbakki í smíðum fyrir rudderservó.
Mynd

Þar sem lamirnar standa út úr lóðrétta stélflettinum þá er vissara að veita þeim smá stuðning. Annar endinn er krumpaður með töng til að ganga alla leið upp á lömina.
Mynd

Eins og sést hér, takið líka eftir að búið er að rispa rörið, bæði að innan og utan svo límið grípi betur, ég skipti út lömunum sem fylgdu fyrir Robart lamir sem ég átti, þær eru stærri.
Mynd

Einhvern veginn svona mun þetta líta út. Fínt ráð þegar menn eru með pinnalamir.
Mynd

Nóg af lími hér.
Mynd

En vantar smá hér, kemur þó ekki að sök.
Mynd

Allt að koma, nú er bara að líma þetta saman. ;)
Mynd
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11572
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Viper Jet

Póstur eftir Sverrir »

Lenti í smá veseni með lamirnar, tvær af þeim höfðu snúist eftir að búið var að ganga frá þeim í límingu svo það þurfti að fjarlægja þær ásamt rörunum, Hysol-ið gaf ekki þumlung eftir! En það tókst öllu betur til í seinna skiptið. ;)

Fuel tank aluminium stopper frá Tamjets eru notaðir í hálsinn á tönkunum, gúmmíið harðnar með tímanum og getur verið vont að ná því úr ef það er skrúfað beint í trefjatankinn.
Mynd

Hysol er svo notað í líminguna, undraefni eins og hefur svo oft komið fram.
Mynd

Þrýstiprófun gekk vel, engar loftbólur létu sjá sig. Síðar verða tankarnir fylltir af eldsneyti og fá svo að standa þannig í smá tíma til að sjá hvort þeir haldi ekki.
Mynd

Eitthvað af dótinu kemur hér, loftmælar, áfylling o.fl.
Mynd

Smá vinna í kringum stjórnklefana.
Mynd
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11572
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Viper Jet

Póstur eftir Sverrir »

Ég var frekar óheppinn með nokkur smáatriði á hlutum í kringum smíðina en að öðru leyti mallaði þetta áfram.

Það vantaði servótengi á eitt skottið, PowerBox buðust þó til að senda mér annað frítt. Ég afþakkaði og útskýrði fyrir þeim að tollurinn/pósturinn hér heima kannaðist ekki við það orð. En ég var nú ekki nema ca. 10 sek. að skella nýju tengi á endann. ;)
Mynd

Svo vantaði skrúfur til að skrúfa festingargrindina á loftventilinn.
Mynd

Þá vantaði gengjur í stykkið sem klemmist utan um rör úr hliðarstýrinu og heldur því föstu, gatið er 4.3mm svo það má gera ráð fyrir að snitta hafi átt 5mm gengjur.
Mynd

Eftir að smá æfingar við að ná klemmunni úr og 3 mínútna vinnu með snitttappa þá var kominn þessi fíni skrúfgangur. Ætli þessi bolti dugi?
Mynd

Eitthvað á þessa leið verður framhlutinn tækjavæddur. Það eru þrjár rafhlöður þarna fram í nefi, PowerBox í miðjunni, móttakarar sitt hvoru megin við það og svo loftventillinn(hjól, lúgur og bremsur) fremst á plötunni.
Mynd

Eins og sést þá eru ekki margir rúmmetrar í boði þrátt fyrir stóra vél, platan er örlítið bogin í miðju, það eru ca. 1-2 mm í afgang þarna.
Mynd

Hér var ég að spá í að skella rofanum en hann á eftir að flakka örlítið um vélina eins og þið eigið eftir að sjá.
Mynd

Tengibretti fyrir túrbínuna, áfyllingar og mælar fyrir bremsur og svo hjólabúnað, ekki víst að þetta verði loka niðurstaðan... ;)
Mynd
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11572
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Viper Jet

Póstur eftir Sverrir »

Hérna er stýrislinkurinn í öllu sínu veldi, takið sérstaklega eftir carbon rörinu yfir honum miðjum til að styrkja hann, svo sem óþarfi þarna en ég ákvað að hafa alla linkana eins. ;)
Mynd

Og hérna sést hann kominn á sinn stað, ég var örugglega í hálftíma að skrúfa servóið á sinn stað, frekar vont að komast upp fyrir servóið að framanverðu en það hafðist. Frekar broslegt eftir á að hyggja því eins og þið sjáið síðar þá þurfti ég að rífa nefgírinn úr og þá tók þetta sama verk ekki nema um 3 mínútur. :lol:
Mynd

Mótorinn, JetCat P-160SX, settist í ný límt sætið sitt í fyrsta skipti í kvöld, Hysol brúkað þarna eins og annars staðar.
Mynd

Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11572
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Viper Jet

Póstur eftir Sverrir »

Fer að styttast í að hliðarstýrið verði klárt. Servóbakkinn límdur í, auðvitað með Hysol!
Mynd

Ein hugmyndin var að festa aftari stjórnklefann í gróðurhúsið.
Mynd

Framhjólið verður væntanlega lokað af ásamt því sem ég fæ hillu fyrir þriðju rafhlöðuna.
Mynd

Hjáveitan og útblástursrörið þarf allt að passa saman en í hvaða röð. :P
Mynd

Ein lömin á nefhjólslúgunni brotnaði þegar hún var hreyfð með loftafli. :(
Mynd
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
Fridrik
Póstar: 119
Skráður: 25. Okt. 2007 21:10:28

Re: Viper Jet

Póstur eftir Fridrik »

Frábært takk Sverrir fyrir þráðinn
Passamynd
Guðjón
Póstar: 841
Skráður: 5. Jún. 2008 18:18:01

Re: Viper Jet

Póstur eftir Guðjón »

Þetta er bara "sick" vél!
Kv. Guðjón Bergmann, s: 6690069
---
"Ég vona að dag einn verði ég eitthvað meira en meðlimur" - Guðjón Bergmann, meðlimur
Passamynd
Jónas J
Póstar: 528
Skráður: 21. Júl. 2009 16:57:14

Re: Viper Jet

Póstur eftir Jónas J »

Góður :)
Í pásu :)

Kveðja Jónas J
Passamynd
Sverrir
Site Admin
Póstar: 11572
Skráður: 17. Apr. 2004 03:33:31

Re: Viper Jet

Póstur eftir Sverrir »

Mér finnst stjórnhornin frá Skymaster ekki nógu traustvekjandi, bæði er frekar lítill hlutinn sem fer ofan í stjórnflötinn og svo eru þau úr mjúku plasti, einnig kýs ég frekar að loka kúlutengi á milli tveggja horna í stjórnfletinum á stærri módelum. Þannig að ég keypti carbon uppfærslusett frá Digitech og eins og sést hér fyrir neðan er smá munur á hornunum.
Mynd

Eitthvað fer lítið fyrir blokkum í hliðarstýrinu sem hægt er að líma stjórnhornin í svo þá er bara að búa þær til með Hysoli, svampurinn lokar af svæðið í kringum stjórnhornin svo límið fari ekki út um allt.
Mynd

Og þá er bara að bíða eftir að límið þorni.
Mynd

Og svona lítur þetta úr full frágengið.
Mynd

Hjáveitan(bypass) að detta á sinn stað.
Mynd

Smá föndur en það hafðist!
Mynd

Vissara að hafa þetta nokkuð beint.
Mynd

Svo var endað á að líma skrokkrifið fyrir pípuna.
Mynd
Icelandic Volcano Yeti
Passamynd
INE
Póstar: 294
Skráður: 11. Júl. 2009 21:35:56

Re: Viper Jet

Póstur eftir INE »

Skemmtilegt að fá að fylgjast með smíðinni.

Hvernig virka bremsur á svona vél, bæði um borð og í stýringu?

Kveðja,

Ingólfur
Ingólfur Einarsson
YAK54/DLE111 ? ULTRA STICK/DA35 ? ELAN/P120SX ? ULTRA FLASH/P120SE
Svara