Fyrir áhugasama þá er nú komið upp kort hér á Fréttavefnum sem gefur gróft yfirlit yfir nokkra módelvelli á landinu. Að sjálfsögðu eru þeir mikið fleiri og þeir sem áhuga hafa á að fjölga þeim eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband með nauðsynlegum upplýsingum svo unnt verði að bæta fleiri flugvöllum inn.
Athugið að þar sem kortagrunnurinn af Íslandi sem er nýttur við þetta kemur ekki með hágæðaupplausn af öllu landinu, bara Suðurnes og Hvalfjörður upp í Borgarnes eru í „bestu“ upplausn, þá getur verið nokkurt frávik á hinum staðsetningunum svo endilega verið óhrædd við að koma með leiðréttingar.
Slóðin er, http://frettavefur.net/kort eða http://kort.frettavefur.net/
11.04.2006 - Nýjung á vefnum
Re: 11.04.2006 - Nýjung á vefnum
Icelandic Volcano Yeti
Re: 11.04.2006 - Nýjung á vefnum
enn eitt snildarframtakið hjá okkar ástsæla ritstjóra!!!!
mbk
Tóti
mbk
Tóti
Re: 11.04.2006 - Nýjung á vefnum
Það er gaman að sjá hvað loftmyndirnar hafa batnað á undanförnum mánuðum. Reykjavík var í fyrra bara eins og klessa. Það kom mér á óvart að ég sá vel minn einkaflugvöll, sem kostaði ómældan svita og skinnlausa lófa, sem fagurgrænan blett. Gott að vita að hann skuli sjást utan úr geimnum
Re: 11.04.2006 - Nýjung á vefnum
Hér fyrir neðan eru tvær myndir af sama svæði.
Efri myndin er tekin úr vefsjánni á Fréttavefnum.
Neðri myndin er tekin úr Google forritinu sem fæst ókeypis hér http://earth.google.com .
Litli völlurinn minn er líklega litli græni depillinn skammt fyrir "suð-vestan" táknið sem er eins og hús.
Þar beint til vinstri við árbakkann er annar lítill grænn blettur. Þar er flugstöðin.
Geysisflugvöllur (800m braut) er gráa línan sem liggur nánast NA/SV hægra meginn við hústáknið.
Mér sýnist í fljótu bragði að upplausnin á myndunum sé svipuð, en að eitthvað í vefsjánni á Fréttavefnum breyti efri myndinni.
Þetta er skemmtilegt framtak hjá þér Sverrir! Sífellt að koma á óvart!